32017R1502
Commission Delegated Regulation (EU) 2017/1502 of 2 June 2017 amending Annexes I and II to Regulation (EC) No 443/2009 of the European Parliament and of the Council for the purpose of adapting them to the change in the regulatory test procedure for the measurement of CO2 from light duty vehicles
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1499 frá 2. júní 2017 um breytingu á I. og II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 510/2011 í þeim tilgangi að laga þá að breytingu á lögboðnu prófunaraðferðinni til mælingar á losun koltvísýrings frá léttum atvinnuökutækjum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 247/2017 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Nei |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerð (ESB) nr. 443/2009 voru settir fram staðlar um mengunarvarnargetu nýrra fólksbifreiða. Í reglugerð (ESB) 2017/1502 eru gerðar breytingar á reglugerð (ESB) nr. 443/2009. Með breytingunum er mælt fyrir um breytingar á stöðlum um mengunarvarnargetu léttra ökutækja. Með reglugerðinni er sett fram ný lögbundin prófunaraðferð vegna mælinga á sértækri losun koltvísýrings frá eldsneytisnotkun léttra ökutækja verði tekin upp. Með breytingunum eru tekin skref til að ná því markmiði sem sett var fram í reglugerð (ESB) nr. 443/2009. Það er gert með því að aðlaga mælingar á útblæstri betur að raunverulegum aksturskilyrðum. Búist er við því að nýja prófunaraðferðin muni gefa koltvísýringsgildi og eldsneytisnotkunargildi sem eru meira dæmigerð fyrir raunverulegar akstursaðstæður. Lítil sem engin áhrif hér á landi.
Nánari efnisumfjöllun
Almennt: Með reglugerð (ESB) nr. 443/2009 um vöktun á koltvísýringslosun frá nýjum fólksbifreiðum voru settir fram staðlar um mengunarvarnargetu nýrra fólksbifreiða sem hluta af samþættri stefnu Bandalagsins um að draga úr losun koltvísýrings frá léttum ökutækjum.
Í reglugerð (ESB) 2017/1502 eru gerðar breytingar á viðaukum I og II við reglugerð (ESB) nr. 443/2009 sbr. ákvæði 9. mgr. 8. gr. og 7. mgr. 13. gr. reglugerðar 443/2009.
Með breytingunum er mælt fyrir um breytingar á stöðlum um mengunarvarnargetu léttra ökutækja. Með reglugerðinni er sett fram ný lögbundin prófunaraðferð vegna mælinga á sértækri losun koltvísýrings frá eldsneytisnotkun léttra ökutækja. Með breytingunum eru tekin tiltekin skref til að ná því markmiði sem sett var fram í reglugerð (ESB) nr. 443/2009 með því að aðlaga mælingar á útblæstri betur að raunverulegum aksturskilyrðum.
Efnisútdráttur: Reglugerð (ESB) 2017/1502 felur í sér að ný lögbundin prófunaraðferð til mælinga á koltvísýringslosun og eldsneytisnotkun léttra ökutækja verði tekin í notkun. Nýja prófunaraðferðin World Harmonised Light Vehicles Test Procedure eða WLPT sem fram kemur í reglugerð (EU) 2017/1151, mun leysa af hólmi eldri prófunaraðferð New European Test Cycle, eða NEDC sem kveðið er á um í reglugerð (EC) nr. 692/2008. Skiptin verða frá og með 1. september 2017. Búist er við því að nýja prófunaraðferðin muni gefa koltvísýringsgildi og eldsneytisnotkunargildi sem eru meira dæmigerð fyrir raunverulegar akstursaðstæður.
Í reglugerðinni kemur fram að aðferðafræði, sem tekur tillit til munar á mælingum á koltvísýringslosun samkvæmt nýju aðferðinni, WLTP, og þeirrar eldri, NEDC, hafi verið sett fram í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1153.
Til að tryggja að bílaframleiðendur geti staðist viðmiðunarmörk á grundvelli losunarheimilda eldri aðferðarinnar skal aðferðafræðinni beitt við innleiðingu á nýju aðferðinni til ársloka 2020. Í samræmi við það skal marklosun koltvísýrings samkvæmt nýju aðferðinni eiga við út árið 2021.
Árið 2020 skal ákvarða koltvísýringslosun allra nýrra skráðra ökutækja á grundvelli beggja aðferða í samræmi við framangreinda aðferðafræði. Halda skal utan um magn losunar samkvæmt báðum aðferðum í gagnabönkum til samanburðar og í samræmi við kröfur sem settar eru fram í 7. mgr. 13. gr. (ESB) reglugerðar nr. 443/2009.
Í reglugerðinni koma fram nánari leiðbeiningar og viðmið um hvernig bílaframleiðendur skuli ná markmiði um koltvísýringslosun fyrir árið 2021.
Áhrif hér á landi: Engir framleiðendur ökutækja á Íslandi og hefur reglugerðin því lítil sem engin áhrif hér á landi eins og stendur. Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 60. gr. umferðalaga nr. 50/1987. Reglugerðin verður innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
Samráð | Nei |
---|---|
Hvaða hagsmunaaðilar | Samgöngustofa |
Niðurstöður samráðs | sjá efnisútdrátt |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32017R1502 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 221, 26.8.2017, p. 4 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 80, 3.10.2019, p. 68 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 254, 3.10.2019, p. 64 |