32018R0259
Commission Implementing Regulation (EU) 2018/259 of 21 February 2018 amending Implementing Regulation (EU) No 427/2014 for the purpose of adjusting it to the change in the regulatory test procedure and simplifying the administrative procedures for application and certification
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/259 frá 21. febrúar 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 427/2014 í þeim tilgangi að aðlaga hana að breytingunni á lögbundnu prófunaraðferðinni og að einfalda stjórnsýslumeðferð vegna umsókna og vottunar
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 027/2019 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða framkvæmdareglugerð um breytingu á reglugerð ESB nr. 427/2014. Breytingin felur einkum í sér að umsóknir um vistvæna nýsköpun sem umhverfisvænni verður hægt að leggja fram með vísan til NECD prófunaraðferðarinnar til 31. desember 2019. Frá 1. janúar 2020 skal vísa til nýrrar prófunarðaferðar WLTP í slíkum umsóknum. Með þessu eru tekin tiltekin skref til að ná markmiðum reglugerðar EB nr. 510/2011 um að draga úr losun koltvísýrings frá léttum ökutækjum. Engir framleiðendur ökutækja eru á Íslandi og hefur reglugerðin því lítil sem engin áhrif hér á landi eins og stendur. Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn.
Nánari efnisumfjöllun
Almenn: Um er að ræða framkvæmdareglugerð um breytingu á reglugerð ESB nr. 427/2014. Breytingin felur einkum í sér að umsóknir um vistvæna nýsköpun sem umhverfisvænni verður hægt að leggja fram með vísan til NECD prófunaraðferðarinnar til 31. desember 2019. Frá 1. janúar 2020 skal vísa til nýrrar prófunarðaferðar WLTP í slíkum umsóknum. Með þessu eru tekin tiltekin skref til að ná markmiðum reglugerðar EB nr. 510/2011 um að draga úr losun koltvísýrings frá léttum ökutækjum.
Efnisútdráttur: Ný lögboðin prófunaraðferð WLTP til mælinga á koltvísýringslosun og eldsneytislosun léttra ökutækja, sem fram kemur í reglugerð EB nr. 2017/1151 var samþykkt af Framkvæmdastjórn ESB 1. júní 2017. WLTP kemur í stað eldri prófunaraðferðar NECD sem fram kemur í XII. viðauka við reglugerð nr. 692/2008.
Frá og með árinu 2021 skal sannreyna að farið sé að markmiðum um losun koltvísýrings, sem fram koma í reglugerð EB nr. 510/2011, samkvæmt WLTP aðferðinni. Frá þeim tíma skal einnig ákvarða koltvísýringssparnað með notkun á nýsköpunartækni samkvæmt WLTP.
Til að endurspegla breytingar á prófunarkerfinu og tryggja að tekið verði tillit til málsmeðferðarinnar við að samræma WLTP gildin við NECD koltvísýringsgildi sem fram koma í reglugerð EB nr. 2017/1153 er nauðsynlegt að breyta reglugerð EB nr. 427/2014.
Til að tryggja sem best breytinguna frá NECD í WLTP skal vera hægt að leggja fram umsókn um vistvæna nýsköpun sem umhverfisvænni með vísan til NECD til 31. desember 2019 en með vísan til WLTP frá gildistöku þessarar reglugerðar.
Það að lækka sparnaðarþröskuldinn í 0,5g af koltvísýringi á klukkutíma er líklegt til að stuðla að víðtækari dreifingu á nýjungum sem geta dregið úr kolstvísýringslosun. Rétt er að samræma breytinguna á sparnaðarþröskuldinum með innleiðingu WLTP og því ætti nýji þröskuldurinn að gilda fyrir umsóknir gerðar með vísan til WLTP.
Tækni sem hefur víða verið til staðar á markaðnum getur ekki talist vistvæn nýsköpunartækni í skilningi 12. gr. reglugerðar EB nr. 510/2011 og er því ekki hæf sem slík. Því þarf að breyta viðmiðunarárinu 2009 í breytilegt viðmiðunarár (dynamic reference year) og skal það gilda fyrir umsóknir um vistvæna nýsköpun sem lagðar eru fram eftir 1. janúar 2020.
Umsögn: Engir framleiðendur ökutækja eru á Íslandi og hefur reglugerðin því lítil sem engin áhrif hér á landi eins og stendur. Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 60. gr. umferðalaga nr. 50/1987. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
Samráð | Nei |
---|---|
Hvaða hagsmunaaðilar | Samgöngustofa |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32018R0259 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 49, 22.2.2018, p. 9 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D055129/01 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 48, 16.7.2020, p. 46 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 228, 16.7.2020, p. 41 |