32018R1631

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1631 of 30 October 2018 authorising the placing on the market of cranberry extract powder as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1631 frá 30. október 2018 um leyfi til að setja á markað trönuberjaútdrátt í duftformi sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 009/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1631 um leyfi til markaðssetningar á þurrkuðu trönuberjaþykkni sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Í september 2011 barst lögbærum yfirvöldum í Frakklandi fyrirspurn um markaðssetningu á þurrkuðu trönuberjaþykkni, í bandalaginu, sem nýfæði til notkunar í ýmsar drykkjarvörur.

Umsóknin var byggð á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 258/97, en uppfyllir einnig ákvæði reglugerðar (ESB) 2015/2283.

Í frummati lögbærra yfirvalda kom fram að þau teldu að þurrkað trönuberjaþykkni uppfyllti skilyrði fyrir nýfæði. Í álitinu kom einnig fram að frekari rannsókna væri þörf varðandi áhrif efnisins á börn.

Í ljósi þessa álits og athugasemda frá öðrum ríkjum sambandsins óskaði framkvæmdastjórnin álits Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) á öryggi efnisins til notkunar sem nýfæðis.
EFTA skilaði áliti þar sem fram kemur að þurrkað trönuberjaþykkni sé öruggt til notkunar í fæðubótarefni fyrir fullorðna í því magni sem fram kemur í umsókninni, og uppfylli skilyrði í reglugerð (ESB) 2015/2283.

Umsækjandi tilkynnti framkvæmdastjórninni að efnið yrði eingöngu notað í fæðubótarefni fyrir fullorðna, en útilokaði ekki að umsókn um breytt notkunarskilyrði bærist síðar.
Umsækjandi fór fram á að hluti af rannsóknunum sem umsóknin byggist á njóti gagnaverndar, sbr. gr. 26.1 í reglugerð 2015/2283 og að umsækjandi hafi einkarétt á að vísa í fyrrgreindar rannsóknir, sbr. gr. 26.2 í reglugerð 2015/2283.

Eftir að hafa skoðað gögn málsins ákvað framkvæmdastjórnin að fallast á beiðnina og veitti umsækjanda einkarétt á að vísa til fyrrgreindra rannsókna. Einkaleyfið gildir í fimm ár frá gildistöku þessarar reglugerðar. Því er umsækjenda veitt einkaleyfi á að markaðssetja nýfæði byggt á þessari reglugerð til fimm ára. Einkarétturinn kemur hins vegar ekki í veg fyrir að aðrir aðilar geti sótt um leyfi fyrir sama nýfæði ef umsóknin er byggð á löglega fengnum gögnum.

Þurrkað trönuberjaþykkni skal því fært inn á lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði til notkunar í fæðubótarefni.
Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1631
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 272, 31.10.2018, p. 17
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D058294/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 16.7.2020, p. 15
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 63, 16.7.2020, p. 16