32018R1648

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/1648 of 29 October 2018 authorising the placing on the market of xylo-oligosaccharides as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1648 frá 29. október 2018 um leyfi til að setja á markað xýló-fásykrur sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 009/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1648 um leyfi til markaðssetningar á xýló-fásykrum sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Í maí 2016 barst lögbærum yfirvöldum í Ungverjalandi fyrirspurn um markaðssetningu á xýló-fásykrum sem nýfæðis til notkunar í matvæli. Sótt var um notkun á efninu í bökunarvörur, mjólkurvörur, ávaxta-smurálegg, súkkulaði og sojadrykki. Umsóknin var með vísan til reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 258/97, en uppfyllir einnig ákvæði reglugerðar (ESB) 2015/2283.

Í frummati lögbærra yfirvalda kom fram að þau teldu xýló-fásykrur uppfylla skilyrði fyrir nýfæði í reglugerð nr. 258/97.

Álitið var sent til meðlima Sambandsins eins og reglugerðin gerir ráð fyrir. Nokkur ríki gerðu athugasemdir vegna stöðugleika efnisins, áætlaða neyslu og eiturefnafræðilega eiginleika.

Í ljósi athugasemdanna óskaði framkvæmdastjórnin álits Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) á öryggi efnisins til notkunar í matvæli.

EFTA skilaði áliti þar sem fram kemur að xýló-fásykrur teljist öruggar til notkunar sem nýfæði í því magni sem fram kemur í umsókninni og uppfylli skilyrði reglugerðar (ESB) 2015/2283.

Álitið EFSA gefur tilefni til að heimila notkun á xýló-fásykrum sem nýfæði til notkunar í bökunarvörur, mjólkurvörur, ávaxtasmurálegg, súkkulaði og sojadrykki og skulu því færðar á lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.
Notkun á xýló-fásykrum í mjólkurvörur skal einnig vera í samræmi við reglugerð reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 um mjólk og mjólkurvörur.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R1648
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 275, 6.11.2018, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D058182/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 16.7.2020, p. 15
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 63, 16.7.2020, p. 16