32019R0856
Commission Delegated Regulation (EU) 2019/856 of 26 February 2019 supplementing Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council with regard to the operation of the Innovation Fund
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/856 frá 26. febrúar 2019 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar starfsemi nýsköpunarsjóðsins
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 143/2020 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með tilskipun 2018/410 var bætt inn í ETS tilskipunina 2003/87, gr. 10a(8) um stofnun nýsköpunarsjóðs sem ætlað er að styðja við þróun í lágkolefnatækni og framleiðslu í þeim greinum sem falla undir viðauka I við tilskipun 2003/87 og með þessari reglugerð (ESB) er Sjóðurinn útfærður. Sjóðurinn tekur við af NER 300 verkefninu innan ESB sem einnig var innleitt í EES samninginn. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við byltingarkenndar lágkolefnatækni uppfinningar og brúa bilið sem þarf til að fjármagna slík verkefni. Gert er ráð fyrir að árið 2030 nái sjóðurinn yfir breytt tæknisvið og stórt landssvæði
Nánari efnisumfjöllun
Almennar reglur um nýsköpunarsjóðinn er að finna í gr. 10a(8) í ETS tilskipuninni, en þar er einnig heimild til að setja þá reglugerð sem hér er til greiningar. Þar er kveðið á um að 450 milljónir losunarheimilda (325 milljónir heimilda sem annars væri úthlutað sem endurgjaldslausum heimildum og 75 milljónir heimilda sem annars væru seldar á uppboði, auk 50 milljónir úr markaðsstöðuleikasjónum) verði settar í sjóðinn. Þar er einnig kveðið á um hverjir geti fengið styrki og skilyrði um framkvæmd styrkveitinga. Framkvæmdarstjórnin á að sjá um að þær heimildir sem renna í sjóðinn séu seldar á uppboði samkvæmt reglum 10(4).gr. í ETS tilskipuninni og á hún að sjá um að söluandvirði heimildanna fari í hendur framkvæmdaraðila sjóðsins.
Reglugerðin setur framkvæmdamarkmið fyrir sjóðinn, tegundir styrkja, reglur um umsóknarferli, verklagsreglur og skilyrði fyrir vali styrkþega, greiðslufyrirkomulag og sjórn sjóðsins. Einnig eru reglur um skýrslugerð, eftirlit, mat, athuganir og upplýsingastefnu sjóðsins.
Markmið sjóðsins eru helst að styðja, í formi styrkja, við:
-verkefni sem sýna miklar tæknilega nýsköpun, ferla eða vörur, sem eru nægilega þróaðar og hafa mikla möguleika á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.,
-að bjóða fjárhagslegan stuðning við þarfir markaðarins og áhættusnið hæfra verkefna, á sama tíma og að laða að opinberar og einkareknar auðlindir.
Sjóðurinn getur einnig stutt blönduð verkefni sem studd eru af öðrum verkefnum Evrópusambandins.
Framkvæmdaraðilum verður boðið upp á að sækja um styrki úr nýsköpunarsjóðnum með opnum auglýsingum fyrir tillögur sem framkvæmdarstjórnin sér um. (open calls).
Valið er úr umsóknum á grundvelli eftirfarandi þátta:
- skilvirkni í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
- þætti nýsköpunar í verkefni
- stöðu verkefnis í ljósi áætlanagerðar, viðskiptamódels, fjárhags og lagaumgjarðar.
- tækni- og markaðsmöguleikar fyrir almenna notkun lausnarinnar
- skilvirkni hvað varðar kostnað, losun gróðurhúsalofttegunda og orkunotkun.
- landfræðileg dreifing verkefna.
Framkvæmdarstjórnin verður að ráðfæra sig við aðildarríkin áður en auglýsingar eru gefnar út, um forval styrkþega, um styrki til blandaðra verkefna. Aðildarríkin eiga einnig að aðstoða framkvæmdarstjórnina við stefnu sjóðsins og vandamál sem koma upp um framkvæmd mála hjá sjóðnum.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32019R0856 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 140, 28.5.2019, p. 6 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2019)1492 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 52, 6.7.2023, p. 46 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 173, 6.7.2023, p. 47 |