32019R1825

Commission Delegated Regulation (EU) 2019/1825 of 8 August 2019 amending Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council to include concentrated apple juice as an active substance in Annex I thereto


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1825 frá 8. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 í því skyni að bæta virka efninu eplasafaþykkni við í I. viðauka við hana
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 008/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér að bæta eplaþykkni, sem virku efni, við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Vegna 3. mgr. 89. gr. reglugerðarinnar er dagsetning samþykkis fyrir eplaþykkni, sem virkt efni í vöruflokki 19, 1. júní 2021.

Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Reglugerðin er bindandi í heild sinni og gildir án frekari lögfestingar í öllum aðildarríkjum.

Nánari efnisumfjöllun

Eplaþykkni, sem virkt efni, féll áður undir ákvæði í 6. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1451/2007 sem heimilaði að sett væru á markað virk efni sem samanstæðu aðeins af matvælum eða fóðri og væru ætluð til að nota sem fæliefni eða löðunarefni í vöruflokki 19. Eftir að gildistími ákvæðisins rann út var lögð fram tilkynning fyrir eplaþykkni í samræmi við 5 mgr. 16. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2014, þar sem óskað var eftir því að eplaþykkni yrði bætt við í endurskoðunaráætlun yfir skráð virk efni í sæfivörum í vöruflokki 19. Eftir að Efnastofnun Evrópu hafði lýst yfir að tilkynningin væri í samræmi við 17. gr. reglugerðarinnar var eplaþykkni bætt á lista yfir þær samsetningar efnis/vöruflokks sem endurskoðunaráætlun yfir skráð virk efni í sæfivörum nær yfir.

Þann 31. janúar 2017 óskaði framkvæmdastjórnin eftir áliti frá Efnastofnuninni um hvort að eplaþykkni gæfi tilefni til áhyggna, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Efnastofnunin ályktaði að eplaþykkni gæfi ekki tilefni til áhyggna og væri því ákjósanlegt virkt efni til að bæta við I. viðauka við reglugerðina.

Í samræmi við ályktun Efnastofnunarinnar þykir rétt að bæta eplaþykkni við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Þar sem eplaþykkni er af náttúrulegum uppruna á það að falla undir 4. flokk, Efni af náttúrulegum uppruna sem hefð er fyrir að nota. Undanskilið er eplaþykkni sem fellur ekki undir skilgreininguna í 2. lið I. hluta I. viðauka við tilskipun ráðsins 2001/112/EB.

Til að tryggja að tímaramminn til að sækja um leyfi sé nægur í samræmi við aðra undirgrein 3. mgr. 89. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 skal dagsetning samþykkis fyrir eplaþykkni, sem virku efni í vöruflokki 19, vera 1. júní 2021.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R1825
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 279, 31.10.2019, p. 19
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2019)5869
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 16.2.2023, p. 23
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 49, 16.2.2023, p. 22

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði