Innleiðingar breytinga á gerð samevrópskra hagtalna um orku - 32019R2146
Commission Regulation (EU) 2019/2146 of 26 November 2019 amending Regulation (EC) No 1099/2008 of the European Parliament and of the Council on energy statistics, as regards the implementation of updates for the annual, monthly and short-term monthly energy statistics
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 21 Hagskýrslugerð |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér breytingu á reglugerð (EB) nr.1099/2008 um samevrópskar hagtölur um orku. Helstu breytingarnar með gerðinni felast í frekari sundurliðun á endanlegri orkunotkun í iðnaðargeira og breytingu á fresti fyrir skilum mánaðarlegrar tölfræði yfir fast jarðefnaeldsneyti (kol) og raforku. Í fyrri útgáfu gerðarinnar var frestur fyrir skilum innan þriggja mánaða frá viðmiðunarmánuði, en í þessari útgáfu er fresturinn lækkaður í tvo mánuði.
Nánari efnisumfjöllun
Helstu áhrif gerðarinnar felast í því að kynntur er spurningalisti fyrir ítarlega sundurliðun á endanlegri orkunotkun fyrir mismunandi geira. Gerðin hefur aðallega í för með sér kröfu um frekari sundurliðun á orkunotkun iðnaðargeirans. Helstu áhrif gerðarinnar eru því að Ísland þyrfti að sundurliða frekar endanlega orkunotkun iðnaðargeirans og skila sérstökum spurningalista um endanlega orkunotkun þar sem ítarlegri upplýsingar koma fram en í árlegu orkuvörulistunum (kol, raforka o.s.frv.). Ákveðnar undanþágur fengust hvað varðar nokkra flokka orkugjafa sem lítið sem ekkert eru í notkun á Íslandi og muni skila sáralitlum niðurstöðum og munu ekki mæta innlendum þörfum. Þetta eru árleg tölfræði yfir jarðgas og kjarnorku, mánaðarleg tölfræði yfir fast jarðefnaeldsneyti (kol) og jarðgas, og skammtíma tölfræði varðandi birgðastöðu hráolíu. Ástæðurnar að baki þeirra liggur í því að þessir orkugjafar; jarðgas, kjarnorka og kol eru í mjög takmarkaðri notkun á Íslandi. Varðandi mánaðarleg skil um birgðastöðu hráolíu myndu gögn einnig skila litlu þar sem engin hráolía er unnin á Íslandi og aðeins er flutt inn lítið magn. Einnig er Ísland algerlega einangrað frá orkudreifikerfi Evrópu og hafa því minni merkingu fyrir evrópska notendur.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Uppfæra þarf reglugerð nr. 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar en gerðin á sér stoð í lögum 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður við gerð evrópskar orkutölfræði fellur á Hagstofu Íslands. Nánari greiningu á þeim kostnaði má sjá í umfjöllun um gerð 32016R1952 um evrópska verðlagstölfræði orku. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Forsætisráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Hagstofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32019R2146 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 325, 16.12.2019, p. 43 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
