Nýfæði - 32020R0206

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/206 of 14 February 2020 authorising the placing on the market of fruit pulp, pulp juice, concentrated pulp juice from Theobroma cacao L. as a traditional food from a third country under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/206 frá 14. febrúar 2020 um leyfi til að setja á markað aldinkjöt, safa úr aldinkjöti og þykktan safa úr aldinkjöti af Theobroma cacao L. sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 194/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/206 um leyfi til markaðssetningar á mauki, safa og þykkni úr Theobroma cacao L. sem hefðbundið fæði frá þriðja ríki í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði. Framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2468(2) kveður á um reglur og kröfur varðandi hefðbundið fæði frá þriðja ríki.

Tilkynnt hefur verið um áætlaða markaðssetningu innan Sambandsins á mauki, safa og þykkni úr Theobroma cacao L. (kakómauk) sem hefðbundnu fæði frá þriðja ríki í samræmi við 14. gr. reglugerðar (ESB) 2015/2283. Sótt var umleyfi til að nota afurðirnar sem slíkar og sem innihaldsefni í matvæli fyrir almenna neytendur. Samkvæmt meðfylgjandi gögnum umsækjenda var sýnt fram á að fyrir mauk, safa og þykkni úr Theobroma cacao L. er saga um örugga notkun í Brasilíu.

Framkvæmdastjórnin leitaði álits Matvælaöryggisstofnunarinnar (EFSA) varðandi öryggi þessara þessara matvæla sem skilaði áliti sínu og telur ekki sé hættulegt heilsu að nota mauk, safa og þykkni úr Theobroma cacao L. sem og í matvæli.

Framkvæmdastjórnin veitir því leyfi fyrir þessari notkun breytingu á lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018 um um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0206
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 43, 17.2.2020, p. 66
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 38
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 240, 28.9.2023, p. 39