32020R0357

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/357 of 4 March 2020 amending Regulation (EU) 2018/395 as regards balloon pilot licences

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 115/2023

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða framkvæmdarreglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/395. Þar sem eðli starfrækslu loftbelgja er annars eðlis en starfræksla annarra loftfara þykir rétt að kveða á um reglur vegna þeirra í sérstökum reglugerðum um loftbelgi. Markmið breytinganna er að bæta kröfum til flugmannsskírteina sem veita réttindi til að stýra loftbelgjum við reglugerð (ESB) 2018/395. Kröfurnar hafa verið einfaldaðar og aðlagaðar sérstaklega að því að eiga við um loftbelgi. Engin áhrif hér á landi. Kostnaður óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða framkvæmdarreglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/395. Þar sem eðli starfrækslu loftbelgja er annars eðlis en starfræksla annarra loftfara þykir rétt að kveða á um reglur vegna þeirra í sérstökum reglugerðum um loftbelgi.
Markmið breytinganna er að bæta kröfum til flugmannsskírteina sem veita réttindi til að stýra loftbelgjum við reglugerð (ESB) 2018/395. Kröfurnar hafa verið einfaldaðar og aðlagaðar sérstaklega að því að eiga við um loftbelgi.
Aðdragandi: Samkvæmt ákvæðum reglugerðar (ESB) 2018/1139 skal framkvæmdastjórnin samþykkja nauðsynlega útfærslu á kröfum til flugmannsskírteina fyrir loftbelgi.
Í ljósi sérstaks eðlis flugskírteina fyrir loftbelgi þykir nauðsynlegt að kveða á um leyfiskröfur vegna þeirra í sérstökum reglugerðum.
Kröfurnar byggja á almennum reglum vegna flugmannsskírteina sem mælt er fyrir um í reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 en eru einfaldaðar og aðlagaðar sérstaklega að loftbelgjum.
Efnisútdráttur: Með þessari gerð eru gerðar breytingar á reglugerð (ESB) 2018/395 og viðaukum við hana.
Efni og gildissviði reglugerðarinnar, sem hefur eingöngu tekið til flugrekstrarkrafna fyrir loftbelgi, er breytt þannig að nú tekur reglugerðin einnig til krafna um útgáfu og endurnýjun flugmannsskírteina fyrir loftbelgi auk tilheyrandi áritana og vottorða.
Þá eru ákvæði Reglugerðar (ESB) 2018/395 um starfrækslu loftbelgja uppfærð og gerð skýrari.
Í gerðinni kemur fram að skírteini útgefin til flugmanna loftbelgja samkvæmt reglugerð (ESB) 1178/2011 fyrir gildistökudag þessarar reglugerðar skuli halda gildi sínu.
Landsbundnum flugmannsskírteinum útgefnum fyrir gildistöku reglugerðarinnar ætti að breyta í skírteini samkvæmt þessari reglugerð. Það skal gert með umbreytingarskýrslu aðildarríkis í samráði við EASA.
Flugþjálfun á loftbelg sem hófst í samræmi við I. viðauka I (Part-FCL) við reglugerð (ESB) 1178/2011 fyrir gildistöku þessarar reglugerðar, skal tekin gild þar sem hún fer eftir víðtækari þjálfunarkröfum en þær sem kynntar eru með þessari gerð.
Flugþjálfun sem hófst fyrir gildistöku þessarar gerðar samkvæmt I. viðauka við Chicaco-samninginn á að meta samkvæmt viðurkenningarskýrslu hjá aðildarríki.
Í tengslum við einfaldaðar kröfur um þjálfun fá þjálfunarfyrirtæki viðeigandi tímafresti eftir þörfum til að breyta þjálfunaráætlunum sínum.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engin flugmannsskírteini fyrir loftbelgi hafa verið gefin út af Samgöngustofu og ekki er fyrirséð að það breytist. Engir hagsmunaaðilar hérlendis.
Lagastoð fyrir innleiðing gerðar: Lagastoðin er 31. gr., 32. gr. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998.
Innleiðing færi fram með breytingu á reglugerð um starfrækslu loftbelgja, nr. 1085/2018.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Reglugerðin sækir stoð í reglugerð (ESB) 2018/1139 sem hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki innleidd hér á landi.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 31. gr., 32. gr. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998. Innleiðing færi fram með breytingu á reglugerð um starfrækslu loftbelgja, nr. 1085/2018.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R0357
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 5.3.2020, p. 34
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 75
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02264, 9.11.2023