32021D2174

Commission Implementing Decision (EU) 2021/2174 of 3 December 2021 on unresolved objections regarding the terms and conditions of the authorisation of the biocidal product Konservan P40 in accordance with Article 36(1) of Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2174 frá 3. desember 2021 um óleyst andmæli varðandi skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivörunni Konservan P40 í samræmi við 1. mgr. 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 125/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin nær yfir sæfivöru, sem einkennd er með málsnúmerinu BC-SH023802-41 í sæfivörugrunninum og snýr að því að skilyrði iii. liðar b-liðar 1 mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 (BPR) eru uppfyllt að því gefnu að það komi fram í markaðsleyfunum sem aðildarríkin veita fyrir sæfivörunni að hana eigi ekki að nota í framleiðslu fatnaðar sem ætlaður er til notkunar af almenningi.

Nánari efnisumfjöllun

Frakkland er tilvísunaraðildarríkið sem metur umsókn um gagnkvæma viðurkenningu, samhliða, fyrir umrædda sæfivöru, sbr. 34. gr. BPR. Sæfivaran inniheldur virka efnið permetrín og er ætluð til notkunar sem skordýraeitur fyrir textíl við framleiðslu á fatnaði og ull, sem ekki er hægt að þvo, notaða í framleiðslu á teppum.Ákvörðunin kemur í kjölfar andmæla Belgíu til samræmingarhóps þess efnis að sæfivaran uppfylli ekki skilyrði iii. liðar b-liðar 1 mgr. 19. gr. BPR vegna ófullnægjandi flæðihraða permetríns í mati á váhrifum fyrir heilbrigði manna.Engin niðurstaða náðist í samræmingarhópnum svo andmælunum var vísað til framkvæmdastjórnarinnar. Eftir að hafa fengið álit hjá sæfivörunefnd Efnastofnunar Evrópu ályktaði framkvæmdastjórnin að sæfivaran uppfylli skilyrði iii. liðar b-liðar 1. mgr. 19. gr. BPR að því gefnu að sæfivaran sé ekki notuð til framleiðslu fatnaðar sem ætlaður er til notkunar af almenningi. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D2174
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 441, 9.12.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 68
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 69