32021L1979

Commission Delegated Directive (EU) 2021/1979 of 11 August 2021 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex IV to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for the use of bis(2-ethylhexyl) phthalate (DEHP) in plastic components in magnetic resonance imaging (MRI) detector coils


iceland-flag
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1979 frá 11. ágúst 2021 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir notkun bis(2-etýlhexýl)þalats (DEHP) í plastíhlutum í könnunarspólum í segulómtækjum (MRI), í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 122/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin lýtur að því að bæta undanþágu í IV. viðauka við tilskipun 2011/65/ESB til að heimila notkun bis(2-etýlhexýl)þalats (DEHP) í íhluti úr plasti, sem notaðir eru í spólur í nemum MRI tækja. Undanþágan kemur til framkvæmda afturvirkt frá 21. júlí 2021.

Nánari efnisumfjöllun

Í II. viðauka við tilskipun 2011/65/ESB (RoHS) eru talin upp efni sem ekki skulu finnast í raf- og rafeindabúnaði umfram styrkleikamörkin sem sett eru í viðaukanum. Meðal þessara efna er bis(2-etýlhexýl)þalat (DEHP), sem ekki má finnast í slíkum búnaði í meiri styrk en 0,1% miðað við þyngd í einsleitum hlutum. Hvað lækningatæki varðar tók þessi takmörkun gildi 22. júlí 2021.Framkvæmdastjórn ESB bárust tvær umsóknir (12. september 2018 og 2. október 2019), í samræmi við ákvæði 3. mgr. 5. gr. RoHS, um að bætt yrði undanþágu í IV. viðauka RoHS fyrir notkun efnisins í íhluti úr plasti, sem notaðir eru í spólur í nemum MRI tækja.Tvær rannsóknir voru unnar til að meta tækni- og vísindalegar forsendur umsóknanna. Niðurstaða rannsóknanna var að engir viðeigandi staðgöngukostir væru aðgengilegir á markaðnum og að synjun undanþágunnar væri líkleg til að valda heildstætt neikvæðum áhrifum á öryggi og heilsu neytenda.Til að tryggja nægt framboð viðeigandi plastíhluta í spólur í nema MRI tækja til notkunar í heilbrigðisgeiranum og til að tryggja nægan tíma til að þróa viðeigandi staðgöngukosti gildir undanþágan til 1. janúar 2024.Til að tryggja skýra nálgun í löggjöfinni gagnvart þeim búnaði sem er fyrir hendi á markaði er lögð áhersla á að tilskipunin taki gildi án tafar og komi til framkvæmda afturvirkt frá 21. júlí 2021.Tilskipunin tók gildi 15. nóvember 2021 í ríkjum Evrópusambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf tilskipunina með breytingu á reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði.
Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021L1979
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 402, 15.11.2021, p. 69
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 63
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 64