Breyting á CRR 2021/558 - tengd STS - 32021R0558
Regulation (EU) 2021/558 of the European Parliament and of the Council of 31 March 2021 amending Regulation (EU) No 575/2013 as regards adjustments to the securitisation framework to support the economic recovery in response to the COVID-19 crisis
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 145/2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2021/558 breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013 (CRR-reglugerðinni) að því er varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun og var samþykkt í því skyni að stuðla að efnahagsbata í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins. Hún var samþykkt samhliða breytingum á verðbréfunar-reglugerð (ESB) 2017/2402, gjarnan nefnd STS-reglugerðin. Innleidd með lögum nr. 71/2025, þ.e. breytingum á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð (ESB) 2021/558 breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013 (CRR-reglugerðinni) að því er varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun og var samþykkt í því skyni að stuðla að efnahagsbata í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins. Hún var samþykkt samhliða breytingum á verðbréfunar-reglugerð (ESB) 2017/2402, gjarnan nefnd STS-reglugerðin. Upphafleg STS-reglugerð (ESB) 2017/2402 heimilaði eingöngu að verðbréfanir með raunverulegu framsali væru merktar sem “STS” (einföld, gagnsæ og stöðluð verðbréfun), en með reglugerð (ESB) 2021/557 um breytingu á STS-reglugerðinni var m.a. opnað á verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila, að uppfylltum nánari skilyrðum. Hún, ásamt reglugerð (ESB) 2021/558, sem hér um ræðir, miðaði sérstaklega að því að styrkja frekar getu stofnana til að veita nauðsynlegt fjármögnunarflæði til raunhagkerfisins í kjölfar COVID-19 heimsfaraldurs, á sama tíma og tryggt er að fullnægjandi varfærnisráðstafanir séu til staðar er varðveita fjármálastöðugleika.Gildissvið STS-reglugerðarinnar (2017/2402) var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 þannig að nái yfir svonefnda gerviverðbréfun. Þess háttar verðbréfun, á efnahagsreikningi upphafsaðila, skal uppfylla kröfur 26. gr. a.-26. gr. a. í STS-reglugerðinni m.áo.br. og tilkynna ber um gerviverðbréfun til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA).Reglugerð (ESB) 2021/558 felur í sér markvissar breytingar á CRR vegna umræddra breytinga á STS-reglugerðinni. Hún kveður m.a. á um gerviaukaáhættuálag í tengslum við verðbréfun, þ.e. fyrirkomulag sem almennt er notað í verðbréfun tiltekinna eignaflokka af upphafsaðilum og fjárfestum til að draga annars vegar úr kostnaði við útlánavörn og hins vegar áhættu fyrir áhættuskuldbindinguna. Í stuttu máli varðar gerðin eiginfjárkröfur til fjármálafyrirtækja vegna tiltekinnar tegundar verðbréfunar og byggir á Basel III.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lög nr. 71/2025 um verðbréfun, þ.e. breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Samráðsgátt | https://island.is/samradsgatt/mal/3497 |
| Niðurstöður samráðs | Birt voru áform um lagasetningu vegna STS-pakkans, sumarið 2023. Engar umsagnir/athugasemdir bárust. Framlagning frumvarp er áformuð á haustþingi 2024. |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Markmið STS-pakkans, sem þessi gerð tilheyrir, er að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á tekjum eða útgjöldum ríkisins vegna þessarar breytingar á CRR. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Seðlabanki Íslands |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32021R0558 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 116, 6.4.2021, p. 25 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2020) 283 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 72, 3.10.2024, p. 45 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2433, 3.10.2024 |
