32022D0323

Commission Implementing Decision (EU) 2022/323 of 22 February 2022 on the unresolved objections regarding the conditions for granting an authorisation for the biocidal product Sojet in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 310/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin nær yfir sæfivöru, sem einkennd er með málsnúmerinu BC-RW058475-96 í sæfivörugrunninum og felst í því að skilyrði iii. liðs b-liðar 1 mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 (BPR) er uppfyllt að því gefnu að fram komi í markaðsleyfi og á merkimiða vörunnar að nota skuli efnaþolna hlífðarhanska (efni hlífðarhanskana skal tekið fram af leyfishafa í vöruupplýsingum) og einnota utanyfirgalla af að minnsta kosti týpu-6 EN 13034 eða jafngildan við meðhöndlun vörunnar.
Krafan er undanskilin ef umsækjandi um markaðsleyfi eða yfirvaldið sem veitir markaðsleyfi tilgreina aðrar tækni- eða skipulagsráðstafanir sem veita sömu eða meiri mildun á áhættu en næst með þeim hlífðarbúnaði sem lýst er hér að ofan. Ráðstafanirnar skulu tilgreindar í markaðsleyfi og á merkimiða vörunnar.
Ákvörðuninni er beint til aðildarríkjanna.

Nánari efnisumfjöllun

Þann 8. apríl 2020 sendi fyrirtækið Sharda Cropchem España S.L. inn umsókn um gagnkvæma viðurkenningu, í röð, til Frakklands, sbr. 33. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 (BPR) fyrir vörunni Sojet en fyrirtækið er leyfishafi markaðsleyfis vörunnar í Þýskalandi. Sæfivaran er flokkuð í vöruflokk 18 og inniheldur virku efnin imídaklópríð og cis-tríkós-9-en. Hún er ætluð til notkunar innandyra sem flugnaeitur og aðeins til notkunar í atvinnuskyni. Varan er leyst upp í vatni og borin á pappaspjöld.Ákvörðunin kemur í kjölfar andmæla Frakklands til samræmingahópsins þess efnis að skilyrði í markaðsleyfi vörunnar í Þýskalandi tryggi ekki að varan uppfylli skilyrði iii. liðs b-liðar 1. mgr. 19. gr. BPR nema ef tekið er fram að við notkun vörunnar skuli notaður hlífðarbúnaður, þ.e. efnaþolna hlífðarhanska (efnið skal tekið fram af leyfishafa í vöruupplýsingum) og einnota utanyfirgalla af að minnsta kosti týpu-6 EN 13034. Frakkland vill meina að þær tækni- og skipulagsráðstafanir í samræmi við tilskipun ráðsins 98/24/EB, sem tilgreindar eru í markaðsleyfi vörunnar í Þýskalandi sem möguleg staðgöngulausn fyrir hlífðarbúnað, veiti ekki næga vörn ef ráðstafarnirnar eru ekki skilgreindar og metnar í mati á sæfivörunni.Engin niðurstaða náðist í samræmingarhópnum svo andmælum var vísað til framkvæmdastjórnarinnar. Eftir að hafa fengið álit hjá sæfivörunefnd Efnastofnunar Evrópu ályktaði framkvæmdastjórnin að sæfivaran uppfylli skilyrði iii. liðs b-liðar 1. mgr. 19. gr. reglugerðar BPR  að því gefnu að fram komi í markaðsleyfi og á merkimiða vöru að nota skuli efnaþolna hlífðarhanska (efnið skal tekið fram af leyfishafa í vöruupplýsingum) og einnota utanyfirgalla af að minnsta kosti týpu-6 EN13034 eða jafngildan honum. Ef umsækjandi um markaðsleyfi eða yfirvaldið sem veitir leyfið tilgreina tækni- eða skipulagsráðstafanir sem veita sömu eða meiri mildun á áhættu skulu þær ráðstafanir koma í staðinn fyrir notkun hlífðarbúnaðs og skal það tekið fram í markaðsleyfinu og á merkingum sæfivörunnar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022D0323
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 55, 28.2.2022, p. 51
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 35
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 164, 29.6.2023, p. 36