Innleiðingarreglugerð um aðferðir til að afla gagna um úrgang sem kemur upp með veiðarfærum - 32022R0092
Commission Implementing Regulation (EU) 2022/92 of 21 January 2022 laying down rules for the application of Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council as regards monitoring data methodologies and the format for reporting passively fished waste
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/92 frá 21. janúar 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 að því er varðar aðferðir fyrir vöktunargögn og snið fyrir skýrslugjöf um úrgang sem er fangaður af tilviljun
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 20.05 Úrgangur |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 340/2022 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnar ESB þar sem mælt er fyrir um með hvaða aðferðum eigi að afla gagna um úrgang sem kemur upp með veiðarfærum til að tryggja að ríki afli þeirra með samræmdum hætti og einnig hvernig og hversu oft eigi að skila inn gögnum til framkvæmdastjórnarinnar.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin er innleiðingargerð framkvæmdastjórnarinnar sem sett er samkvæmt heimild í tilskipun um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum (Directive (EU) 2019/883 of the European Parliament and of the Council of 17 April 2019 on port reception facilities for the delivery of waste from ships, amending Directive 2010/65/EU and repealing Directive 2000/59/EC).Ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 191/2022 um upptöku tilskipunar 2019/883 hefur ekki tekið gildi þar sem staðfesting á stjórnskipulegum fyrirvara allra EES EFTA ríkjanna liggur ekki fyrir ennþá.Samkvæmt tilskipun 2019/883, grein 8(7), eiga ríki að tryggja að gögnum um rúmmál og magn úrgangs sem kemur upp með veiðarfærum sé safnað og þau send til framkvæmdastjórnarinnar. Í gerðinni er mælt fyrir um með hvaða aðferðum eigi að afla fyrrgreindra gagna til að tryggja að ríki afli þeirra með samræmdum hætti og einnig hvernig og hversu oft eigi að skila inn gögnum til framkvæmdastjórnarinnar.Hingað til hefur ekki verið fylgst með hversu mikið af úrgangi sem komið hefur upp með veiðarfærum skipa er skilað í land og ekki er til staðar sérstök aðstaða til móttöku á slíkum úrgangi í höfnum. Því er um að ræða nýtt verkefni sem kallar á breytt verklag við móttöku á úrgangi frá skipum, aukið eftirlit og gagnaöflun, auk þess sem gera má ráð fyrir að breyta verði móttökuaðstöðu í höfnum. Verkefnið mun því hafa í för með sér viðbótarkostnað.Ljóst er að innleiða þarf þessa reglugerð í heild sinni. Hvað varðar laga- og reglugerðarbreytingar er að öðru leyti vísað til greiningar á tilskipun 2019/883.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 1200/2021 um móttöku á úrgangi og framleifum frá skipum. Lagastoð í lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R0092 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 15, 24.1.2022, p. 16 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 86 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 164, 29.6.2023, p. 88 |