Reglugerð um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna. - 32023R1113

Regulation (EU) 2023/1113 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on information accompanying transfers of funds and certain crypto-assets and amending Directive (EU) 2015/849

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 042/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tillaga að reglugerð um breytingu á reglugerð EB 2015/847 um þær upplýsingar sem fylgja eiga millifærslum fjármuna

Nánari efnisumfjöllun

Tillagan er hluti af svokölluðum "AML-pakka" ESB, ásamt tillögu að reglugerð um stofnun nýrrar evrópskrar eftirlitsstofnunar á vettvangi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 421), tillögu að reglugerð um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (COM (2021) 420) og tillögu að  að tilskipun um þær aðgerðir sem aðildarríki eiga að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun fjármálakerfisins hvað varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (6. peningaþvættistilskipunin) (COM (2021) 423).tillagan víkkar út gildissvið gildandi reglna þannig að þær nái einnig til sýndareigna (e. crypto assets). Verði tillaga framkvæmdastjórnarinnar samþykkt mun hin nýja reglugerð fella eldri reglugerð um sama efni úr gildi, en umræddar reglur eru innleiddar hér á landi með reglugerð um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 70/2019. Tillagan felur í sér viðbrögð við breytingum FATF á tilmælum nr. 15, m.a. hvað varðar innleiðingu svonefndrar ferðareglu (e. travel rule). Tilmæli 15 lúta að því að sem kallað er ný tækni (e. New Technologies) og skyldu ríkja til að meta áhættu tengda henni. Í tilmælunum er sérstaklega fjallað um skyldur ríkja þegar kemur að sýndareignum og þjónustuveitendum sýndarfjár, en umrædd ferðaregla lýtur að skyldu til að hafa tiltækar og senda með, tilteknar upplýsingar um sendanda og móttakanda við millifærslu sýndareigna.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta eða setja nýja reglugerð um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Reglugerðarheimild er í 56. gr. laga nr. 140/2018, en vera kann að breyta þurfi þeim lögum samhliða innleiðingu þessarar reglugerðar eða setja ný lög. Sjá umfjöllun við aðrar tillögur pakkans (COM (2021) 421, COM (2021) 420 og COM (2021) 423).
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Innleiðing AML-pakkans í heild mun hafa talsverð áhrif og kalla á breytingar á löggjöf eða nýja lagasetningu.

Á vettvangi sérfræðingahóps um fjármálaþjónustu hafa verið greind hugsanleg "lárétt EES-álitaefni" (e. Possible EEA Horizontal Challenges) varðandi:
- Ákvæði sem vísa til gerða sem ekki hafa verið innleiddar í EES-samninginn.
- Ákvæði sem tengjast þriðju ríkjum.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Dómsmálaráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1113
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 150, 9.6.2023, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 422
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 81
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/771, 8.5.2025