Útdráttur
Með reglugerð ESB 2024/622 og í samræmi við 3. mgr. 25. gr. a. í tilskipun (ESB) 2003/87 (ETS-tilskipun) er settur upp listi yfir þau ríki, að undanskildum EES ríkjum, Sviss og Bretlandi, sem talin eru taka þátt í kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi (Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation, CORSIA) hvað varðar losun á árinu 2023.
Nánari efnisumfjöllun
Í formálsorðum reglugerðar (ESB) 2024/622, sem er hér til greiningar kemur meðal annars eftirfarandi fram:Flugstarfsemi heyrir undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, sem sett var upp með tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipunin). Með þeim breytingum sem gerðar voru á ETS-tilskipuninni með tilskipun (ESB) 2023/958, var kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar til kolefnisjöfnunar og -samdráttar í alþjóðaflugi (Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation, CORSIA) innleitt (e. implemented). Samkvæmt 3. mgr. 25. gr. a. í ETS-tilskipuninni skal framkvæmdastjórn ESB setja upp lista yfir ríki, önnur en EES ríki, Sviss og Bretaland, sem að talin eru taka þátt í CORSIA, í tilgangi (e. for the purposes of) ETS-tilskipunarinnar, þar sem að grunnástand (e. baseline) sem að miðað er við er 2019, fyrir árin 2021-2023. EES ríkin, Sviss og Bretland eru ekki tiltekin á þessum lista því að ferðir þar á milli falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS kerfið). Hvað varðar árið 2023, þá er listinn byggður á tilkynningum ríkja til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (Interantional Civil Aviation Organisation, ICAO) um áform þeirra um að taka þátt í CORSIA fyrir losun á árinu 2023 - en ICAO birtir árlega lista yfir þau ríki sem hafa gefið slíka tilkynningu. Með tilliti til breytinga sem verða á listum ICAO mun framkvæmdastjórnin birta árlega lista yfir þau ríki sem að talin eru taka þátt í CORSIA, í tilgangi (e. for the purposes of) ETS – tilskipunarinnar, önnur en EES ríki, Sviss og Bretland. Á lista ICAO yfir þau ríki sem talin eru taka þátt í CORSIA á árinu 2023 eru San Marínó og Mónakó. Þessi ríki eru þó ekki tiltekin á lista framkvæmdastjórnarinnar, sem er birtur í viðauka við reglugerð (ESB) 2024/622, þar sem að enginn flugvöllur er í þessum ríkjum og engin flug áttu sér stað á árinu 2023 á flugleiðum þar sem að CORSIA er beitt í tilgangi (e. for the purposes of) ETS – tilskipunarinnar Listinn yfir ríki, sem birtur er í viðauka við reglugerð (ESB) 2024/622 er til notkunar fyrir flugrekendur þegar þeir skila inn upplýsingum um losun á árinu 2023. Reglugerðin tók gildi þremur dögum eftir birtingu hennar í febrúar 2024 svo að listinn væri tilbúinn áður en tímafrestur fyrir flugrekendur til að skila inn skýrslum um losun sína á árinu 2023 rann út. Þær ráðstafanir sem að settar eru fram í reglugerðinni eru í samræmi við álit Nefndarinnar um loftslagsbreytingar (e. Climate Change Committee). Reglugerðin sjálf telur aðeins tvær greinar:Í 1. gr. kemur fram að lista yfir þau ríki sem að talin eru taka þátt í CORSIA, í tilgangi (e. for the purposes of) ETS - tilskipunarinnar, fyrir losun á árinu 2023 megi finna í viðauka við reglugerðina - þar eru listuð 82 ríki. Í 2. gr. kemur fram að reglugerðin skuli taka gildi þremur dögum eftir að hún er birt, hún hefur því nú þegar tekið gildi gagnvart aðildarríkjum Evrópusambandsins.