32017R0078

Commission Implementing Regulation (EU) 2017/78 of 15 July 2016 establishing administrative provisions for the EC type-approval of motor vehicles with respect to their 112-based eCall in-vehicle systems and uniform conditions for the implementation of Regulation (EU) 2015/758 of the European Parliament and of the Council with regard to the privacy and data protection of users of such systems


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/78 frá 15. júlí 2016 um að setja stjórnsýsluákvæði vegna gerðarviðurkenningar á vélknúnum ökutækjum með tilliti til neyðarsímkerfa í ökutækjum, sem byggjast á neyðarnúmerinu 112 og samræmd skilyrði fyrir framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/758 með tilliti til friðhelgi einkalífsins og persónuverndar notenda slíkra kerfa
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 081/2017
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Heildargerðarviðurkenningarkerfi ESB fyrir vélknúin ökutæki var komið á fót með tilskipun 2007/46/EB. Í því er skilgreint hlutverk og ábyrgð allra aðila í viðurkenningarferlinu. Því til viðbótar er talið nauðsynlegt að setja sérstök ákvæði um EB gerðarviðurkenningu ökutækja sem eru útbúin neyðarsímakerfi, sem byggjast á neyðarnúmerinu 112. Það er markmiðið með reglugerð 2017/78 EB.

Nánari efnisumfjöllun

Heildargerðarviðurkenningarkerfi ESB fyrir vélknúin ökutæki var komið á fót með tilskipun 2007/46/EB. Í því er skilgreint hlutverk og ábyrgð allra aðila í viðurkenningarferlinu. Því til viðbótar er talið nauðsynlegt að setja sérstök ákvæði um EB gerðarviðurkenningu ökutækja sem eru útbúin neyðarsímakerfi, sem byggjast á neyðarnúmerinu 112. Það er markmiðið með reglugerð 2017/78 EB.
Í reglugerð ESB 2015/758 eru settar fram almennar kröfur fyrir nýjar tegundir ökutækja í flokki M1, fólksbifreiðar og N1, sendibifreiðar. Þær skulu vera útbúnar neyðarsímkerfi af þessu tagi frá 31. mars 2018. Þó er gerðar ákveðnar undantekningar svo sem þegar ökutæki eru framleidd í takmörkuðu upplagi eða að ekki er hægt að koma slíku kerfi fyrir í þeim af tæknilegum orsökum. Reglugerðin nær einnig til íhluta og aðskildra tæknieininga sem hönnuð eru og smíðuð fyrir þau ökutæki sem reglugerðin nær til.
Í reglugerð ESB 2017/79 eru síðan settar fram sérstakar tæknikröfur og prófunaraðferðir fyrir neyðarsímkerfin í EB gerðarviðurkenningu ökutækja. Í reglugerð 2017/79 eru jafnfram settar fram slíkar kröfur til íhluta og aðskildra tæknieininga sem eru hannaðir og smíðaðir fyrir slík ökutæki.
Til að tryggja samræmd skilyrði fyrir innleiðingu prófunaraðferða fyrir EB gerðarviðurkenningu og til að einfalda umsókn um slíka viðurkenningu, er talið nauðsynlegt að stöðluð upplýsingagögn séu aðgengileg.
Framleiðendur eiga að tryggja að símtöl sem fara í gegnum neyðarsímakerfin séu ekki rekjanleg. Það þarf því að tryggja að neyðarsímakerfi séu alla jafna ekki nothæf til samskipta og að upplýsingarnar sem kerfið geymir séu ekki aðgengilegar neinum. Framleiðendur skulu einnig gera viðeigandi öryggisráðstafanir til að tryggja öryggi þeirra upplýsinga sem eru í kerfinu fyrir óviðkomandi aðilum.
Neytendur skulu fá yfirgripsmiklar og áreiðanlegar upplýsingar um virkni neyðarsímakerfisins og sérstaklega hvernig upplýsingarnar eru unnar í kerfinu og um geymslu gagna. Neytendur skulu einnig vera upplýstir um sérkenni hvers konar einkaneyðarþjónustu eða annarrar viðbættrar þjónustu ef slíku er komið fyrir í ökutækinu.
Reglugerð ESB 2017/78 innheldur reglur um viðurkenningu nýrra tegunda ökutækja með neyðarsímakerfi sem byggjast á neyðarnúmerinu 112 sem og um íhluti og tæknieiningar ökutækja vegna þess. Jafnframt eru settar fram samræmdar kröfur fyrir innleiðingu ákvæða reglugerðar ESB 2015/758 um friðhelgi einkalífs og gagnavernd til notenda neyðarsímakerfisins.
Í reglugerðinni kemur fram hvernig framleiðandi ber sig að við viðurkenningarferli nýs ökutækis og/eða íhluta og tæknieiningar þess. Við reglugerðina eru tveir viðaukar. Í þeim fyrri eru form að opinberu upplýsingaskjali um EB gerðarviðurkenningu ökutækja með neyðarsímakerfi sem byggist á neyðarnúmerinu 112. Sá síðari er um sama efni en á við íhluti og aðskildar tæknieiningar ökutækja.
Á Íslandi eru engir framleiðendur ökutækja og hefur þessi tiltekna reglugerð því lítil sem engin áhrif hér á landi.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 60. Gr. umferðarlaga, nr. 50/1987. Innleiðing verður gerð með breytingu á reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R0078
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 12, 17.1.2017, p. 26
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 11, 7.2.2019, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 36, 7.2.2019, p. 24