ECSP - Reglugerð um evrópska hópfjármögnunarþjónustuveitendur fyrir fyrirtæki - 32020R1503

Regulation (EU) 2020/1503 of the European Parliament and of the Council of 7 October 2020 on European crowdfunding service providers for business, and amending Regulation (EU) 2017/1129 and Directive (EU) 2019/1937


iceland-flag
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 030/2024

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í mars 2018 fram tillögu að reglugerð um evrópska hópfjármögnunarþjónustuveitendur fyrir fyrirtæki. Þar er lagt til að unnt verði að fá leyfi sem gildir í öllum aðildarríkjum sambandsins til að hafa milligöngu um hópfjármögnun fyrirtækja í formi lána eða verðbréfakaupa ef hún er ekki umfram milljón evrur á ári. Aðilar sem fá starfsleyfi samkvæmt reglugerðinni þurfa að fullnægja kröfum varðandi stjórnun, meðhöndlun kvartana, hagsmunaárekstra, útvistun verkefna, vörslu á fjármunum viðskiptavina, upplýsingagjöf til viðskiptavina, könnun á hæfi viðskiptavina, vörslu gagna og markaðssetningu. Gert er ráð fyrir því að Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin veiti starfsleyfi, hafi eftirlit með þjónustuveitendum og geti beitt ákveðnum rannsóknarheimildum og viðurlögum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf ný heildarlög um innleiðingu gerðarinnar.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1503
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 347, 20.10.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2018) 113
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) Ísland

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar