32021L0884
Commission Delegated Directive (EU) 2021/884 of 8 March 2021 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex IV to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards the validity period of an exemption for the use of mercury in electric rotating connectors used in intravascular ultrasound imaging systems
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/884 frá 8. mars 2021 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar gildistíma undanþágu fyrir notkun kvikasilfurs í snúanleg raftengi, sem eru notuð í kerfi til innæðaómskoðunar, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 284/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með tilskipuninni er gildistími undanþágu í 42. lið IV. viðauka við tilskipun 2011/65/ESB fyrir notkun kvikasilfurs í kerfi til innæðaómskoðunar framlengdur til 30. júní 2026.
Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Í II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB er listi yfir efni sem raf- og rafeindabúnaður má ekki innihalda skv. 1. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar. Í IV. viðauka er listi yfir undanþágur frá framangreindum takmörkunum. Undanþágur í IV. viðauka eiga sérstaklega við um lækningatæki og tæki til vöktunar og eftirlits.
Kvikasilfur er á meðal bönnuðu efnanna í II. viðauka en í 42. lið IV. viðauka er veitt undanþága sem leyfir notkun á kvikasilfri í kerfi til innæðaómskoðunar.
Upprunalegur gildistími framangreindrar undanþágu var til 31. desember 2019 en 6. október 2017, innan tilgreindra tímamarka, barst framkvæmdastjórninni beiðni um endurnýjun undanþágunnar og í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar gildir undanþágan þar til ákvörðun hefur verið tekin um afgreiðslu endurnýjunarinnar.
Í ljósi skorts á áreiðanlegum staðgöngulausnum er niðurstaðan sú að í þessari tilskipun er gildistími undanþágunnar framlengdur til 30. júní 2026.
Kvikasilfur er á meðal bönnuðu efnanna í II. viðauka en í 42. lið IV. viðauka er veitt undanþága sem leyfir notkun á kvikasilfri í kerfi til innæðaómskoðunar.
Upprunalegur gildistími framangreindrar undanþágu var til 31. desember 2019 en 6. október 2017, innan tilgreindra tímamarka, barst framkvæmdastjórninni beiðni um endurnýjun undanþágunnar og í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar gildir undanþágan þar til ákvörðun hefur verið tekin um afgreiðslu endurnýjunarinnar.
Í ljósi skorts á áreiðanlegum staðgöngulausnum er niðurstaðan sú að í þessari tilskipun er gildistími undanþágunnar framlengdur til 30. júní 2026.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf tilskipunina með breytingu á reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði. Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021L0884 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 194, 2.6.2021, p. 37 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2021)1442 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 19, 29.2.2024, p. 12 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/554, 29.2.2024 |