32021R1087
Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1087 of 7 April 2021 amending Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council, as regards updating the references to the provisions of the Chicago Convention
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1087 frá 7. apríl 2021 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar uppfærslu tilvísana í ákvæði Chicago-samningsins
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 139/2023 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða framselda gerð framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1139 Breytingarnar snúa að uppfærslu á tilvísunum til ákvæða Chicago-samningsins. Engin áhrif metin vegna gerðarinnar. Enginn kostnaður metinn í tengslum við innleiðingu þessarar reglugerðar.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða framselda gerð framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1139 Breytingarnar snúa að uppfærslu á tilvísunum til ákvæða Chicago-samningsins. Markmið með þessari gerð er að stuðla að háu og samræmdu stigi umhverfisverndar með því að samræma umhverfisverndarkröfur við ICAO SARPs í 16. viðauka við Chicago-samninginn. Aðdragandi: Loftför, önnur en ómönnuð loftför, hreyflar þeirra, loftskrúfur, hlutar og óuppsettur búnaður eiga að uppfylla kröfur um umhverfisvernd skv. ákvæðum reglugerðar (ESB) 2018/1139 sem vísa til viðeigandi ákvæða Chicago-samningsins um kröfurnar. Þann 11. mars 2020 samþykkti Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) breytingu á 16. viðauka við Chicago-samninginn á I. bindi „flughávaði“, II. bindi „losun frá hreyflum“ og á III. bindi „losun koltvísýrings frá flugvélum“. Breytingarnar tóku gildi 1. janúar 2021. Vegna þessara breytinga þarf að uppfæra tilvísanir í Chicago-samninginn í reglugerð (ESB) 2018/1139. Efnisútdráttur: 2. mgr. 9. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139 er breytt og orðast svo: „Að því er varðar hávaða og losun skulu þessi loftför og hreyflar þeirra, loftskrúfur, hlutar og óuppsettur búnaður uppfylla kröfurnar um umhverfisvernd, sem settar eru fram í 13. breytingu á I. bindi, 10. breytingu á II. bindi og 1. breytingu á III. bindi, sem gilda öll frá og með 1. janúar 2021, í 16. viðauka við Chicago-samninginn. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engin áhrif metin vegna gerðarinnar Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Um er að ræða breytingu á reglugerð ESB 2018/1139 sem enn hefur ekki verið innleidd. . Innleidd með breytingu á reglugerð sem notuð verður til að innleiða reglugerð Evrópusambandsins 2018/1139. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og ALMENNINGS, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn í tengslum við innleiðingu þessarar reglugerðar. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Ákvæði gerðarinnar vísa í reglugerð (ESB) 2018/1139 sem hefur enn ekki verið tekin upp í EES samninginn. Fyrirséð er að gerðin verði tekin upp í samninginn með aðlögunum.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð: Um er að ræða breytingu á reglugerð ESB 2018/1139 sem enn hefur ekki verið innleidd. . Innleidd með breytingu á reglugerð sem notuð verður til að innleiða reglugerð Evrópusambandsins 2018/1139. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021R1087 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 236, 5.7.2021, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2021)2102 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 106 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02282, 9.11.2023 |