Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2463 frá 3. nóvember 2023 um birtingu notendahandbókar þar sem lýst er nauðsynlegum áföngum til aðildar í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS) skv. reglugerð (EB) nr. 1221/2009 - 32023D2463

Commission Decision (EU) 2023/2463 of 3 November 2023 on the publication of the user’s guide setting out the steps needed to participate in the EU eco-management and audit scheme (EMAS) pursuant to Regulation (EC) No 1221/2009 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felst í endurútgáfu á notendaleiðbeiningum sem lýsa nauðsynlegum áföngum til aðildar í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS). Umhverfisstjórnunarkerfi eru meðal verkfæra sem félög og önnur fyrirtæki/stofnanir geta notað til að bæta árangur sinn í umhverfismálum og jafnframt sparað orku og aðrar auðlindir.

Nánari efnisumfjöllun

Notendahandbókin var upphaflega samþykkt af framkvæmdastjórninni árið 2013 með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (tilkynnt með númeri C(2013) 1114) (2013/131/ESB) en henni hefur verið breytt í tvígang. Þar sem breytingar hafa verið gerðar var talið æskilegt að endurútgefa handbókina til að auka skýrleika.Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 frá 25. nóvember 2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS) var innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 334/2013.Eitt markmið í umhverfisstefnu ESB er að hvetja allar tegundir fyrirtækja/stofnana til að nota umhverfisstjórnunarkerfi og að draga úr umhverfisáhrifum sínum. Umhverfisstjórnunarkerfi eru meðal verkfæra sem félög og önnur fyrirtæki/stofnanir geta notað til að bæta árangur sinn í umhverfismálum og jafnframt sparað orku og aðrar auðlindir.Notendahandbókin varðandi umhverfisstjórnunarkerfi ESB var útbúin í samræmi við kröfurnar í 5. mgr. 46. gr. reglugerðar (EB) nr. 1221/2009.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Óþarfi er að breyta lögum eða reglugerð en það gæti verið tilefni til að breyta reglugerð nr. 344/2013 um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS). Ákvarðanir sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn, og hafa ekki verið innleiddar í landsrétt, eru ekki bindandi sem almennar reglur en þær geta samt sem áður haft þýðingu við skýringu og túlkun EES-réttar og við teljum þessar leiðbeiningar geta verið notaðar til skýringar og túlkunar á reglugerð (EB) nr. 1221/2009. Ef ákveðið væri að innleiða ákvörðunina væri tilvísunaraðferðin rétta aðferðin til innleiðingar en það er ekki skylda til að innleiða hana.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ekkert fyrirtæki eða stofnun er með EMAS vottun við gerð þessarar greiningar.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023D2463
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2463, 10.11.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar