Útdráttur
Um er að ræða drög að reglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012. Breytt er kröfum til slíkrar starfsemi og þær uppfærðar til að tryggja að þær endurspegli nýjustu tækni í þróun og séu í samræmi við bestu starfsvenjur á sviði flugrekstrar. Þá miðar gerðin að því að fella björgunarflug í neyð með þyrlum, undir sömu kröfur og sjúkraflug með þyrlum í neyð. Samkvæmt núverandi kröfum um frammistöðu og súrefni í sjúkraflugi með þyrlum og björgunarflug með þeim sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 965/2012 er ekki heimilt að stunda það í mikilli hæð. Er því breytt með þessari gerð svo bjarga megi fólki í hvaða hæð sem er. Lítil áhrif og óverulegur kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða drög að reglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar sjúkraflug með þyrlum (HEMS).Með þessari gerð eru gerðar breytingar á kröfum til slíkrar starfsemi og þær uppfærðar til að tryggja að þær endurspegli nýjustu tækni í þróun og séu í samræmi við bestu starfsvenjur á sviði flugrekstrar. Þá miðar gerðin að því að fella björgunarflug í neyð með þyrlum, e. non-medical, undir sömu kröfur og sjúkraflug með þyrlum í neyð.Efnisútdráttur: Í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 965/2012 er mælt fyrir um tæknikröfur og stjórnsýslureglur fyrir starfrækslu loftfara, þar á meðal fyrir þyrlur sem notaðar eru við sjúkraflug (HEMS).Neyðarflug með þyrlum, non-medical, við þær aðstæður sem eru í sjúkraflugi eru jafn krefjandi og þegar leitað er að loftförum og unnið að björgun þeirra. Þegar slíkt flug, e. helicopter emergency non-medical rescue, fellur undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2018/1139 ætti það að vera undir sama eftirliti og sjúkraflug með þyrlum. Með þessari gerð er gert ráð fyrir að kröfur um sjúkraflug og eftirlit með því eigi einnig við um björgunarflug, non-medical, þegar það fellur undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2018/1139.Samkvæmt núverandi kröfum um frammistöðu og súrefni í sjúkraflugi með þyrlum og björgunarflug með þeim sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 965/2012 er ekki heimilt að stunda það í mikilli hæð. Er því breytt með þessari gerð svo bjarga megi fólki í hvaða hæð sem er.Þá er gerð er breyting á skilgreiningu á hugtakinu flókið vélknúið loftfar til að samræma það við skilgreiningu hugtaksins í reglugerð (ESB) 2018/1139.Rekstraraðilar sem stunda sjúkraflug með þyrlum (HEMS) og lögbær yfirvöld sem bera ábyrgð á vottun og eftirliti með slíkum rekstri munu fá hæfilegan tíma til að innleiða að fullu þær breytingar sem koma fram í reglugerðinni. Gildistöku ákvæða sem tengjast HEMS er frestað um eitt ár frá birtingu. Þá mun gildistíma tiltekinna ákvæða sem til dæmis kveða á um að afla þurfi nýs samþykkis, nýs tækjabúnaðar eða breytingar á kröfum um frammistöðu og þjálfun vera frestað um lengri tíma.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Lítið sem ekkert sjúkraflug á þyrlum er stundað á Íslandi og þá undir þjóðarflugrekstrarleyfi Landhelgisgæslunnar. Áhrif gerðarinnar hér á landi eru því óveruleg. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 93. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur kostnaður er metinn vegna innleiðingar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.