32024R0858
Commission Regulation (EU) 2024/858 of 14 March 2024 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use of the nanomaterials Styrene/Acrylates copolymer, Sodium Styrene/Acrylates copolymer, Copper, Colloidal Copper, Hydroxyapatite, Gold, Colloidal Gold, Gold Thioethylamino Hyaluronic Acid, Acetyl heptapeptide-9 Colloidal gold, Platinum, Colloidal Platinum, Acetyl tetrapeptide-17 Colloidal Platinum and Colloidal Silver in cosmetics products
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð um Evrópuþings og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í II. viðauka yfir innihaldsefni (nanó) sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum og skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörur.
Nánari efnisumfjöllun
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð um Evrópuþings og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Breytingar fela meðal annars í sér bann við notkun eftirtaldra efna á nanóformi í snyrtivörum: stýren/akrýlat samfjölliða(nanó), natríumstýren/akrýlat samfjölliða(nanó), kopar(nanó), sviflausn nanóagna silfurs, gull(nanó), sviflausn nanóagna gulls, gullþíóetýlamínhýalúrónsýra (nanó), sviflausn gullasetýlheptapeptíð-9 nanóagna, platína (nanó), sviflausn nanóagna platínu, sviflausn platínuasetýl tetrapeptíð-17 nanóagna. Framangreindum efnum er bætt við II. viðauka yfir innihaldsefni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum.Einnig er nýrri færslu bætt í skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörur. Nýja færslan varðar nanóform hýdroxýapatíts og þar eru sett skilyrði um hámarksstyrk efnisins í efnablöndu tilbúinni til notkunar í tannkremum (10% hámarksstyrkur) og munnskoli (0,465% hámarksstyrkur). Einnig að ekki skuli nota efnið í vörum sem geta leitt til váhrifa á lungu vegna innöndunar notanda. Að auki eru sett skilyrði um stærð, lögun og yfirborð nanóagnanna.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Frá fyrsta degi mánuðar 9 mánuðum eftir að reglugerðin tekur gildi skulu snyrtivörur sem innihalda efnið Hýdroxíapatít (nanó) og fullnægja ekki þeim kröfum sem settar eru fram um takmarkanir á notkun samkvæmt reglugerðinni ekki vera settar á markað.Frá fyrsta degi mánuðar 18 mánuðum eftir að reglugerðin tekur gildi skulu snyrtivörur ekki boðnar fram á markaði nema þær uppfylli þessi nýju skilyrði í II. og III. viðauka.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, 3 |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Bæta þarf þessari reglugerð við þær sem innleiddar eru með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Aukakostnaður: Þessi reglugerð bætir við nýjum takmörkunum varðandi markaðssetningu. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga. |
---|---|
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Lyfjastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32024R0858 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/858, 15.3.2024 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D093318/01 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |