32019L0170

Commission Delegated Directive (EU) 2019/170 of 16 November 2018 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex III to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for lead in PZT based dielectric ceramic materials for certain capacitors

Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/170 frá 16. nóvember 2018 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í rafefnakeramíkefnum sem innihalda keramíkþrýstirafefni fyrir tiltekna þétta, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 153/2019
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin lýtur að því að framlengja gildistíma ofangreindrar undanþágu (liður 7(c)-IV í III. viðauka) fyrir flokka 1-7 og 10 þar sem nothæf staðgönguefni eru enn ekki fyrir hendi. Viðeigandi lið í viðaukanum er skipt út fyrir nýjan texta í viðauka við þessa gerð.

Nánari efnisumfjöllun

Til glöggvunar eru tilgreindir gildistímar fyrir alla flokka raf- og rafeindabúnaðar sem falla undir RoHS í uppfærða ákvæðinu:
• 21. júlí 2021 fyrir flokka 1-7, 10 og búnað í flokkum 8 og 9 sem ekki eru lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi eða vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði
• 21. júlí 2023 fyrir lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi í flokki 8
• 21. júlí 2024 fyrir flokk 11 og vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði í flokki 9

Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Aðildarríkin skulu innleiða ákvæði tilskipunarinnar fyrir lok tólfta mánaðar eftir gildistöku hennar. Ákvæðin skulu koma til framkvæmda tólf mánuðum og einum degi eftir gildistöku tilskipunarinnar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði. Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019L0170
Samþykktardagur hjá ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 33, 5.2.2019, p. 8
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2018)7509
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 74, 10.11.2022, p. 31
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 291, 10.11.2022, p. 30