Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur. - 32019R0698

Commission Regulation (EU) 2019/698 of 30 April 2019 amending Annexes III and V to Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council on cosmetic products

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 231/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
Vegna hugsanlegrar heilsuáhættu er gerð breyting varðandi það í hvaða snyrtivörum innihaldsefnið klimbasól má vera til staðar og jafnframt breytast styrkleikamörk þess.

Nánari efnisumfjöllun

Klimbasól (EN:climbazole, CAS nr. 38083-17-9) er samkvæmt V. viðauka leyft sem rotvarnarefni upp að 0,5% hámarkstyrk en verður nú einungis leyft sem rotvarnarefni í andlitskremum, hárkremum og fótavörum upp að 0,2% hámarksstyrk og í hársápu sem skolast burt eftir notkun upp að 0,5% hámarksstyrk.
Ef klimbaól er ekki notað sem rotvarnarefni skal notkunin eingöngu miðast við hársápu til flösumeðferðar sem skolast burt eftir notkun og er þá leyfður hámarksstyrkur þess 2%.
III. og V. viðauki við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 breytast í samræmi við viðauka með þessari reglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur. Reglugerðin verður innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í efnalögum 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0698
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 119, 7.5.2019, p. 66
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 3, 5.1.2023, p. 51
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 4, 5.1.2023, p. 52