32019R1821
Commission Delegated Regulation 2019/1821 of 8 August 2019 amending Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council to include powdered egg as an active substance in Annex I thereto
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1821 frá 8. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 í því skyni að bæta virka efninu egg í duftformi við í I. viðauka við hana
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 008/2020 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að bæta eggjadufti, sem virku efni, við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Vegna 3. mgr. 89. gr. reglugerðarinnar er dagsetning samþykkis fyrir eggjadufti, sem virkt efni í vöruflokki 19, 1. júní 2021.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerðin er bindandi í heild sinni og gildir án frekari lögfestingar í öllum aðildarríkjum.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerðin er bindandi í heild sinni og gildir án frekari lögfestingar í öllum aðildarríkjum.
Nánari efnisumfjöllun
Eggjaduft, sem virkt efni, féll áður undir ákvæði í 6. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1451/2007 sem heimilaði að sett væru á markað virk efni sem samanstæðu aðeins af matvælum eða fóðri og væru ætluð til að nota sem fæliefni eða löðunarefni í vöruflokki 19. Eftir að gildistími ákvæðisins rann út var lögð fram tilkynning fyrir eggjadufti í samræmi við 5 mgr. 16. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2014, þar sem óskað var eftir því að eggjadufti yrði bætt við í endurskoðunaráætlun yfir skráð virk efni í sæfivörum í vöruflokki 19. Eftir að Efnastofnun Evrópu hafði lýst yfir að tilkynningin væri í samræmi við 17. gr. reglugerðarinnar var eggjadufti bætt á lista yfir þær samsetningar efnis/vöruflokks sem endurskoðunaráætlun yfir skráð virk efni í sæfivörum nær yfir.
Þann 31. janúar 2017 óskaði framkvæmdastjórnin eftir áliti frá Efnastofnuninni um hvort að eggjaduft gæfi tilefni til áhyggna, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Efnastofnunin ályktaði að eggjaduft gæfi ekki tilefni til áhyggna og væri því ákjósanlegt virkt efni til að bæta við I. viðauka við reglugerðina.
Í samræmi við ályktun Efnastofnunarinnar þykir rétt að bæta eggjadufti við I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Þar sem eggjaduft er af náttúrulegum uppruna á það að falla undir 4. flokk, Efni af náttúrulegum uppruna sem hefð er fyrir að nota. Undanskilið er eggjaduft sem telst ekki sem matvæli eða fóður.
Til að tryggja að tímaramminn til að sækja um leyfi sé nægur í samræmi við aðra undirgrein 3. mgr. 89. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 skal dagsetning samþykkis fyrir eggjadufti, sem virku efni í vöruflokki 19, vera 1. júní 2021.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32019R1821 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 279, 31.10.2019, p. 7 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2019)5886 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 13, 16.2.2023, p. 23 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 49, 16.2.2023, p. 22 |