32020L0361

Commission Delegated Directive (EU) 2020/361 of 17 December 2019 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex III to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for hexavalent chromium as an anticorrosion agent of the carbon steel cooling system in absorption refrigerators


iceland-flag
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/361 frá 17. desember 2019 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir sexgilt króm sem tæringarvarnarefni í kolstálskælikerfi ísogskæla, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 076/2020
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í þessari tilskipun er 9. lið í lista yfir undanþágur í III. viðauka við tilskipun 2011/65/ESB (undanþága sem heimilar notkun sexgilds króms í ísogskælum) skipt upp í þrjá hluta með mismunandi gildistíma þar sem ástæða þykir til að framlengja undanþáguna fyrir tiltekna skýrt afmarkaða notkun en ekki fyrir alla notkun sem undanþágan nær til í dag.

Nánari efnisumfjöllun

Í II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB er listi yfir efni sem raf- og rafeindabúnaður má ekki innihalda skv. 1. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar. Í III. viðauka tilskipunarinnar er listi yfir notkun sem er undanþegin þessum takmörkunum.

Sexgilt króm er á meðal bönnuðu efnanna í II. viðauka en í 9. lið III. viðauka er veitt undanþága sem leyfir notkun sexgilds króms sem tæringarvarnarefnis í kolstálskælikerfinu í ísogskælum, upp að 0,75% (m/m) í kælilausninni. Upprunalegur gildistími undanþágunnar fyrir vöruflokka 1 til 7 og 10 var til 21. júlí 2016 en 20. janúar 2015, innan tilgreindra tímamarka, barst framkvæmdastjórninni beiðni um endurnýjun undanþágunnar og í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar gildir undanþágan þar til ákvörðun hefur verið tekin um afgreiðslu endurnýjunarinnar.

Niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar er að ástæða sé til að framlengja undanþáguna fyrir ísogskæla í vöruflokkum 1 til 7 og 10 sem mæta ákveðnum skilyrðum en að rétt sé að fella hana úr gildi fyrir aðra. Til þess að auka skýrleika er að auki bætt í viðaukann upplýsingum um gildistíma undanþágunnar fyrir vöruflokka 8, 9 og 11 í samræmi við ákvæði 2. mgr. 5. gr. tilskipunar 2011/65/ESB.

Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf tilskipunina með breytingu á reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði.

Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020L0361
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 67, 5.3.2020, p. 112
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2019)9099
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 22, 16.3.2023, p. 15
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 78, 16.3.2023, p. 16