Aukefni í matvælum - 32020R0279
Commission Regulation (EU) 2020/279 of 27 February 2020 amending Annex II to Regulation (EC) No 1333/2008 of the European Parliament and of the Council as regards the use of soybean hemicellulose (E 426)
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/279 frá 27. febrúar 2020 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun sojabaunahálfbeðmis (E 426)
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 192/2020 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/279 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á hemisellulósa úr sojabaunum.
Nánari efnisumfjöllun
Í viðauka II við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er listi sambandsins yfir aukefni sem leyfð eru í matvæli og skilyrði fyrir notkun þeirra.
Listann má uppfæra í samræmi við sameiginlegu málsmeðferðina sem um getur í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1331/2008, annaðhvort að frumkvæði Framkvæmdastjórnarinnar eða með umsókn.
Samkvæmt viðauka II við reglugerð 1333/2008 er hemisellulósi úr sojabaunum (E 426) leyfilegt aukefni og leyft í ýmis matvæli með hámarksgildi milli 1500 og 30 000 mg/kg. Sótt var um leyfi til að nota hemisellulósa úr sojabaunum (E 426) sem bindiefni í bragðbættar gerjaðar mjólkurafurðir og bragðbætta drykki.
Matvælaöryggisstofnunin hefur gefið út vísindaálit um notkun á hemisellulósa úr sojabaunum sem aukefni. Í álitinu kemur fram að það sé afar ólíklegt að að öryggi neytenda stafi hætta af núverandi notkun á hemisellulósa úr sojabaunum og að ekki sé þörf á ásættanlegu daglegu neyslugildi (ADI).
Í C-hluta viðauka II, við reglugerð (EB) 1333/2008 eru öll aukefni skilgreind. Aukefni í flokki I eru efni sem ekki þarf að setja ásættanlegt daglegt neyslugildi (ADI) fyrir má nota þau í mörg matvæli eftir þörfum (Quantum satis), sbr. gr. 3(2)(h) í þeirri reglugerð.
Í E hluta viðauka II við reglugerð 1333/2008 kemur fram að notkun á aukefnum í flokki I er leyfð í bragðbættar gerjaðar mjólkurafurðir og bragðbætta drykki og hemisellulósi úr sojabaunum fellur undir þá notkun.
Þar sem hemisellulósi úr sojabaunum verður nú hluti af aukefnum í flokki I, eru öll ákvæði um notkun efnisins í E-hluta viðauka II þar með óþörf þar sem aukefni í flokki I eru leyfð í alla matvælaflokka, og því skal fjarlægja þau. Af sömu ástæðu skal fjarlægja leyfileg hámarksgildi fyrir E 426 úr matvælaflokki 17 (fæðubótarefni), þar sem leyft verður að nota efnið eftir þörfum (qs).
Viðauka II við reglugerð (ESB) nr. 1333/2008 er því breyta í samræmi við það.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 978/2008 sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Matvælaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R0279 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 59, 28.2.2020, p. 6 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D063923/03 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 70, 28.9.2023, p. 34 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 240, 28.9.2023, p. 35 |