Aukefni í matvælum - 32020R0763
Commission Regulation (EU) 2020/763 of 9 June 2020 amending the Annex to Regulation (EU) No 231/2012 laying down specifications for food additives listed in Annexes II and III to Regulation (EC) No 1333/2008 of the European Parliament and of the Council as regards specifications for tricalcium phosphate (E 341 (iii))
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/763 frá 9. júní 2020 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem eru tilgreind í II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar á þríkalsíumfosfati (E 341 (iii))
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 022/2021 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/763 um breytingu á viðauka við reglugerð (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar fyrir aukefni sem er finna í viðaukum II og III við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar fyrir tríkalsíumfosfat (E 341(iii)).
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 segir til um nákvæmar skilgreiningar fyrir aukefni sem er finna í viðaukum II og III við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1333/2008.
Listann má uppfæra í samræmi við sameiginlegu málsmeðferðina sem um getur í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1331/2008, annaðhvort að frumkvæði framkvæmdastjórnarinnar eða með umsókn.
Sótt hefur verið um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum fyrir aukefnið tríkalsíumfosfat (E 341(iii)). Samkvæmt núgildandi reglum er tríkalsíumfosfat búið til með því að hlutleysa fosfórsýru með kalsíumhýdroxíði. Umsækjandi fer fram á að hlutleysing með kalsíumkarbónati verði einnig leyfð.
Sérfræðingar vinnuhóps um aukefni hafa fjallað um aðferðina og skilað áliti. Samkvæmt þeim gögnum sem umsækjandi hefur lagt fram og með hliðsjón af áliti vinnuhópsins telur framkvæmdastjórnin að aðferðin sé ekki líkleg til að hafa skaðleg áhrif á heilsu.
Ekki er talið að notkun á kalsíumkarbónati í stað kalsíumhýdroxíðs við framleiðslu á tríkalsíumfosfati sé líkleg til að hafa áhrif á heilsu manna og því þarf ekki að leita álits Matvælaöryggisstofnunarinnar.
Viðauka við reglugerð (ESB) nr. 231/2012 er því breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 397/2013 sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Matvælaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R0763 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 182, 10.6.2020, p. 8 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D066081/02 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 3, 11.1.2024, p. 48 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/33, 11.1.2024 |