32020R1083

Commission Delegated Regulation (EU) 2020/1083 of 14 May 2020 Supplementing Regulation (EU) 2019/517 of the European Parliament and of the Council by establishing the eligibility and selection criteria and the procedure for the designation of the Registry of the.eu top-level domain name


iceland-flag
Aframseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1083 frá 14. maí 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 með því að ákvarða hæfis- og valviðmiðanir og aðferð við tilnefningu skráningarstofu höfuðléna .eu
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.04 Þjónusta tengd upplýsingasamfélaginu
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 119/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerð 2019/517 átti að fella niður óþarfar reglur um lénið .eu og gera reglurnar þannig að af þeim hljótist sem minnst óþarfa umstang. Þetta var gert þar sem samkeppni færi væntanlega vaxandi um skráningu og úthlutun léna. Framselda reglugerðin sem nú er til umfjöllunar er til viðbótar og stuðnings við fyrrnefnda reglugerð. Hún felur í sér reglur og viðmið um val á skráningaraðila á höfuðléninu .eu. Gert er ráð fyrir því að sá aðili verði valinn samkvæmt útboði. Skilgreindar eru kröfur til hæfis þátttakenda í útboði, bæði um tæknilega getu og fjárhagslega stöðu, kröfur til gæða þjónustunnar. Tilgreint er hvað skuli koma fram í umsókn aðila um þátttöku í útboði. Reglusetningin er því um innri stjórnsýslu Evrópusambandsins. Reglusetningin kallar því ekki á sérstaklega aðlagaða innleiðingu hér á landi. Enginn kostnaður samfara þessari reglugerð

Nánari efnisumfjöllun

Höfuðlénið .eu skapar sjálfstætt auðkenni fyrir Evrópusambandið á internetinu og er ætlað að auka sýnileika sambandsins á internetinu, auka framboð á höfuðlénum til neytenda og styðja við rafræn viðskipti. Fyrstu reglur sem settar voru um höfuðlénið eru reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 733/2002/EB og nr. 874/2004/EB. Þessar gerðir hafa verið innleiddar í íslenskan rétt með reglugerðum ráðherra nr. 50/2014, sbr. og nr. 248/2016.
Með reglugerð 2019/517 átti að fella niður óþarfar reglur um lénið .eu og gera reglurnar þannig að af þeim hljótist sem minnst óþarfa umstang. Þetta var gert þar sem samkeppni færi væntanlega vaxandi um skráningu og úthlutun léna. Draga átti úr íþyngjandi málsmeðferð og umsýslu við skráningu lénsins, slaka á úthlutunarskilyrðum og hverfa frá algjöru banni við lóðréttri samþættingu þess aðila sem heldur utan um gagnagrunninn og skráningaraðila léna á smásölustigi. Hvorki var um að ræða eðlisbreytingu á starfsemi höfuðlénsins .eu frá því sem nú er, né verið að auka íþyngjandi kvaðir. Þvert á móti var verið að slaka á kröfum og gera reglurnar sveigjanlegri.
Framselda reglugerðin sem nú er til umfjöllunar er til viðbótar og stuðnings við fyrrnefnda reglugerð. Hún felur í sér reglur og viðmið um val á skráningaraðila á höfuðléninu .eu. Gert er ráð fyrir því að sá aðili verði valinn samkvæmt útboði. Skilgreindar eru kröfur til hæfis þátttakenda í útboði, bæði um tæknilega getu og fjárhagslega stöðu, kröfur til gæða þjónustunnar. Tilgreint er hvað skuli koma fram í umsókn aðila um þátttöku í útboði.
Reglusetningin er því um innri stjórnsýslu Evrópusambandsins og hefur ekki að geyma ákvæði sem fela í sér skuldbindingar gagnvart aðildarríkjum EES-svæðisins. Reglusetningin kallar því ekki á sérstaklega aðlagaða innleiðingu hér á landi. Enginn kostnaður samfara þessari reglugerð

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 75. gr. fjarskiptalaga, nr. 81/2003. Innleiðing fari fram með tilvísunaraðferð í sérstakri reglugerð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Ábyrg stofnun Fjarskiptastofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1083
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 239, 24.7.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2020)3075
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 5, 18.1.2024, p. 55
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/113, 18.1.2024