32020R1771
Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1771 of 26 November 2020 approving reaction mass of peracetic acid (PAA) and peroxyoctanoic acid (POOA) as an existing active substance for use in biocidal products of product-types 2, 3 and 4
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1771 frá 26. nóvember 2020 um að samþykkja hvarfmassa perediksýru og peroxýoktansýru sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 138/2021 |
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að samþykkja hvarfmassa af perediksýru og peroxýoktansýru sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4, að uppfylltum forskriftum og skilyrðum eins og fram kemur í viðauka.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Hvarfmassi af perediksýru og peroxýoktansýru hefur verið metinn til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4, eins og lýst er í V. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 528/2012. Frakkland var tilnefnt sem skýrslugjafarríki og skilaði lögbært matsyfirvald þess matsskýrslu ásamt niðurstöðu til Efnastofnunar Evrópu þann 2. janúar 2019. Í samræmi við 2. mgr. 7. gr. framseldrar reglugerðar (ESB) nr. 1062/2014 var álit Efnastofnunar Evrópu, sem byggir á mati lögbæra matsyfirvaldsins, samþykkt af Sæfivörunefndinni þann 4. mars 2020. Samkvæmt álitinu má vænta þess að sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4 sem innihalda hvarfmassa af perediksýru og peroxýoktansýru uppfylli skilyrði b-liðar 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 ef ákveðnum forskriftum og skilyrðum er varða notkun er fylgt.
Hvarfmassi af perediksýru og peroxýoktansýru er því samþykktur til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4 að uppfylltum ákveðnum forskriftum og skilyrðum sem tiltekin eru í viðauka við reglugerðina.
Þær ráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni eru í samræmi við álit fastanefndar um sæfivörur.
Hvarfmassi af perediksýru og peroxýoktansýru er því samþykktur til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4 að uppfylltum ákveðnum forskriftum og skilyrðum sem tiltekin eru í viðauka við reglugerðina.
Þær ráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni eru í samræmi við álit fastanefndar um sæfivörur.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa reglugerð með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R1771 |
---|---|
Samþykktardagur hjá ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 398, 27.11.2020, p. 9 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Samþykktardagur | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 7, 25.1.2024, p. 12 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/151, 25.1.2024 |