Nýfæði - 32020R1993

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1993 of 4 December 2020 authorising the placing on the market of selenium-containing yeast (Yarrowia lipolytica) biomass as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1993 frá 4. desember 2020 um leyfi til að setja á markað lífmassa, sem inniheldur selen, úr gersveppnum Yarrowia lipolytica sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 104/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1993 um leyfi til markaðssetningar á bíómassa úr gersveppum sem innihalda selen sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.

Samkvæmt framkvæmdareglugerð (ESB) 2019/760 er leyfilegt að markaðssetja bíómassa úr gersveppnum (Yarrowia lipolytica) sem fæðubótarefni eins og skilgreint er í tilskipun þingsins og ráðsins 2002/46/EC, að undanskildum fæðubótarefnum fyrir börn og smábörn.

Sótt hefur verið um leyfi til að markaðssetja selenbættan bíómassa úr gersveppum (Yarrowia lipolytica) sem nýfæði í fæðubótarefni í samræmi við 10. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2015/2283, að undanskildum fæðubótarefnum fyrir börn og smábörn.

Framkvæmdastjórnin óskaði umsagnar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) sem skilaði áliti og telur að efnið sé öruggt til notkunar í fæðubótarefni. Stofnunin setti þó þann fyrirvara að fyrir neytendur sem þegar neyta fæðis með hátt seleninnihald gæti neyslan leitt til þess að farið væri yfir æskileg efri mörk fyrir selen. Vegna athugasemda stofnunarinnar breytti umsækjandi umsókn sinni um hámarksinnihald fyrir efnið í fæðubótarefnum þannig að ekki væri hætta á að samanlögð neysla fæðu með hátt innihald selens og fæðubótarefna með selenbættan bíómassa færi yfir æskileg efri mörk fyrir selen.

Framkvæmdastjórnin telur að í samræmi við álit stofnunarinnar og með tilliti til þeirra breytinga sem gerðar voru á umsókninni sé hægt að leyfa selenbættan bíómassa úr gersveppum (Yarrowia lipolytica) sem nýfæði til notkunar í fæðubótarefni.

Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018 og með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1993
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 410, 7.12.2020, p. 62
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D068944/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 5, 18.1.2024, p. 29
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/98, 18.1.2024