32020R2096
Commission Regulation (EU) 2020/2096 of 15 December 2020 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH), as regards carcinogenic, mutagenic or reproductive toxicant (CMR) substances, devices covered by Regulation (EU) 2017/745 of the European Parliament and of the Council, persistent organic pollutants, certain liquid substances or mixtures, nonylphenol and testing methods for azocolourants
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2096 frá 15. desember 2020 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR-efni), tæki sem falla undir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/745, þrávirk, lífræn mengunarefni, tiltekin fljótandi efni eða blöndur, nónýlfenól og prófunaraðferðir fyrir asólitarefni
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 137/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðardrögin snúa að ýmsum uppfærslum á XVII. viðauka við REACH meðal annars til að bregðast við breytingum sem orðið hafa á ákvæðum annarra reglugerða ESB sem tengjast kröfum í tilteknum takmörkunum XVII. viðauka. Innleiðing getur krafist tæknilegrar aðlögunar.
Nánari efnisumfjöllun
Þær breytingar sem drögin miða að því að gera á XVII. viðauka eru:
- Vísunum í úreltar hættusetningar (R-phrases) er eytt úr 3. atriði viðaukans auk málsgreina sem hafa ekki lengur vægi.
- 22., 67. og 68. atriði eru felld úr gildi þar sem að strangari takmarkanir séu nú fyrir hendi fyrir sömu efni í reglugerð (ESB) 2019/1021. Hér skapast þörf fyrir aðlögun við innleiðingu þar sem reglugerð (ESB) 2019/1021 er enn sem komið er ekki hluti af EES-samningnum.
- EC og CAS númer sem bætt var við 46. atriði árið 2009 eru nú fjarlægð aftur þar sem viðbót þeirra leiddi til ótilætlaðrar mildunar á takmörkuninni í því atriði.
- 1. til 6. viðbætar eru uppfærðir til að endurspegla breytingar sem orðið hafa á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008.
- Búnaður sem fellur innan gildissviðs reglugerðar (ESB) 2017/745 er nú undanskilinn ákvæðum takmarkana í 28. til 30. atriði viðaukans til að koma í veg fyrir tvöfalda reglusetningu.
- Töflu í 10. viðbæti er skipt út fyrir nýja töflu með uppfærðum upplýsingum um prófunaraðferðir fyrir azolitarefni í samræmi við 43. atriði viðaukans.
Reglugerðin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins en gildistöku einstakra ákvæða er frestað til að veita haghöfum tíma til að aðlagast.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð er í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|---|
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Gæta þarf að því að innleiða ekki ákvæði þessarar gerðar um niðurfellingu 22., 67. og 68. atriðis úr XVII. viðauka fyrr en innleiðingu reglugerðar (ESB) 2019/1021 er lokið. |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R2096 |
---|---|
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 425, 16.12.2020, p. 3 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D066998/04 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 7, 25.1.2024, p. 10 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/142, 25.1.2024 |