32020R2160
Commission Regulation (EU) 2020/2160 of 18 December 2020 amending Annex XIV to Regulation (EU) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council as regards the substance group 4-(1,1,3,3-Tetramethylbutyl)phenol, ethoxylated (covering well-defined substances and substances of unknown or variable composition, complex reaction products or biological materials, polymers and homologues)
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2160 frá 18. desember 2020 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1907/2006 að því er varðar efnahópinn 4-(1,1,3,3-tetrametýlbútýl)fenól, etoxýlað (sem nær yfir vel skilgreind efni og efni af óþekktri eða breytilegri samsetningu, flókin myndefni eða líffræðileg efni, fjölliður og raðkvæmi)
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 138/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að breyta síðasta skiladegi umsóknar og lokadegi fyrir markaðssetningu og notkun efnahópsins 4-(1,1,3,3,-tetrametýlbútýl) fenól, etoxýlerað sem birt er í XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 (REACH). Með breytingunni verður tryggt að áfram verði hægt að nota efnahópinn við rannsóknir, þróun og framleiðslu lyfja, lækningatækja eða fylgihluta lækningatækja til greiningar, meðferðar eða til varnar gegn COVID-19.
Nánari efnisumfjöllun
Efnahópurinn 4-(1,1,3,3,-tetrametýlbútýl) fenól, etoxýlerað er talið upp á lista yfir leyfisskyld efni í XIV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1907/2006 (REACH). Síðasti skiladagur umsóknar um leyfi fyrir efnahópinn var þann 4. júlí 2019 og lokadagur 4. janúar 2021. Að lokadegi liðnum er öll notkun efnahópsins bönnuð nema að leyfi hafi verið veitt fyrir skilgreindri notkun, umsókn um leyfi fyrir skilgreindri notkun hafi verið skilað inn fyrir síðasta skiladag en ákvörðun um umsóknina liggi ekki fyrir eða notkunin sé undanþegin skv. reglugerðinni.
Efnahópurinn er notaður við greiningar á COVID-19 kórónaveirunni sem hefur valdið heimsfaraldri og við framleiðslu tækja í þeim tilgangi. Auk þess er hann notaður við þróun bóluefna gegn COVID-19 svo það má gera ráð fyrir að hann verði notaður í framleiðslu þeirra. Einnig er ekki útilokað að efnahópurinn verði notaður í þróun og framleiðslu virkra innihaldsefna lyfja og fullbúinna lyfjaforma til að berjast gegn COVID-19.
Upphaf heimsfaraldursins var eftir að síðasti skiladagur umsóknar um leyfi fyrir efnahópinn rann upp og því var ekki hægt að senda inn umsókn um leyfi fyrir þeirri notkun efnahópsins sem snýr að greiningu, meðferð og vörnum gegn COVID-19 fyrir þá dagsetningu eins og lög segja til um.
Til að bregðast við þessum aðstæðum og tryggja að áfram verði hægt að þróa og framleiða lyf ásamt lækningartækjum sem henta til greiningar, meðferðar og til varnar COVID-19 er síðasta skiladegi umsóknar um leyfi og lokadegi fyrir markaðssetningu og notkun efnahópsins 4-(1,1,3,3,-tetrametýlbútýl) fenól, etoxýlerað breytt.
Síðasti skiladagur umsókna um leyfi er því 18 mánuðum eftir gildistöku reglugerðarinnar og lokadagur er 36 mánuðum eftir gildistöku reglugerðarinnar.
Reglugerðin tekur gildi strax við birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og skal koma til framkvæmda frá 4. júlí 2019.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf gerðina með breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lagastoð er í 1. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32020R2160 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 431, 21.12.2020, p. 38 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D070073/02 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 7, 25.1.2024, p. 12 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/151, 25.1.2024 |