32021D2146

Commission Implementing Decision (EU) 2021/2146 of 3 December 2021 postponing the expiry date of approval of N,N-diethyl-meta-toluamide for use in biocidal products of product-type 19

Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2146 frá 3. desember 2021 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir N,N-díetýl-m-tólúamíði til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 124/2022
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felur í sér frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 til 31. janúar 2025. Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Virka efnið N,N-díetýl-meta-tólúamíð er talið upp í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 og samkvæmt 86. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012 er það talið samþykkt undir þeirri reglugerð að uppfylltum þeim forskriftum og skilyrðum sem sett eru fram í I. viðauka við tilskipunina. Gildistími samþykkisins er til 31. júlí 2022 en þann 26. janúar 2021 var sótt um endurnýjun á því í samræmi við 1. mgr. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Frakkland, sem lögbært matsyfirvald, hefur ákveðið að nauðsynlegt sé að vinna fullnaðarmat á umsókninni. Líklegt er að ekki náist að taka ákvörðun um endurnýjun áður en lokadagur samþykkis rennur upp og þess vegna þykir rétt að fresta lokadegi samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 til 31. janúar 2025.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D2146
Samþykktardagur hjá ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 433, 6.12.2021, p. 23
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D075698/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 22.9.2022, p. 66
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 246, 22.9.2022, p. 67