32021R0115

Commission Delegated Regulation (EU) 2021/115 of 27 November 2020 amending Annex I to Regulation (EU) 2019/1021 of the European Parliament and of the Council as regards perfluorooctanoic acid (PFOA), its salts and PFOA-related compounds


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/115 frá 27. nóvember 2020 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 373/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Þremur liðum I. viðauka reglugerðar (ESB) 2019/1021, sem snerta skráningu perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og annara PFOA-afleiða er breytt.
Framkvæmdarstjórninni bárust upplýsingar um það að PFOA, sölt hennar og aðrar PFOA-afleiður finnast sem óviljandi óhreinindi í styrkjum yfir mörkunum 0,025 mg/kg í sumum lækningatækjum, öðrum en ígræðanlegum tækjum og inngripstækjum. Til þess að tryggja framleiðslu slíkra tækja eftir 3. desember 2020 og gefa framleiðendum tíma til þess að minnka þessi óhreinindi er ákveðið að setja mörkin sem 2 mg/kg.
Tölugildi varðandi geislun var of sértæktnákvæmt og er því fjarlægt.
Fyrir skýrleika sakir þótti rétt á einum stað í ákvæðinu að skrifa út perflúorókolefnakeðjur í stað þess að nefna aðeins kolefnakeðjur.

Nánari efnisumfjöllun

Fjórða dálki A hluta I. viðauka reglugerðar 2019/1021 (ESB), sem fjallar um tilteknar undanþágur, vegna skráningar perflúoróoktansýru (PFOA), salta hennar og annara PFOA-afleiða er breytt á eftirfarandi hátt.
- Fyrstu setningu 3. liðs breytt á þann hátt að notað er hugtakið perflúorókolefnakeðja í stað kolefnakeðju þegar lengd keðjunnar er lýst.
- Fyrstu setningu 4. liðs er breytt á þann hátt að hámarksgeislunin 400 kilograys er fjarlægð úr textanum.
- 10. lið er bætt við sem snertir lækningartæki og takmarkanir sem snerta þau.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Sem stendur er fjallað um þrávirk lífræn efni í reglugerð nr. 954/2013. Lagastoð í efnalögum nr. 61/2013. Líklega verður sú gerð felld úr gildi og ný reglugerð sett til innleiðingar á reglugerð (ESB) nr. 2019/1021. Ákvæði þessarar gerðar ættu þá að innleiðast í nýju gerðinni. Lagastoð er í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 13. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0115
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 36, 2.2.2021, p. 7
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2020)7980
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 23, 14.3.2024, p. 83
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/713, 14.3.2024