32021R0643
Commission Delegated Regulation (EU) 2021/643 of 3 February 2021 amending, for the purposes of its adaptation to technical and scientific progress, Part 1 of Annex VI to Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council on classification, labelling and packaging of substances and mixtures
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/643 frá 3. febrúar 2021 um breytingu á 1. hluta VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tæknilegum og vísindalegum framförum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 205/2021 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun og merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Breytingarnar fela í sér að minnka óvissu með því að bæta orðalag í athugasemdum um færslur og athugasemdum um auðkenningu, flokkun og merkingu efna við 1 hluta VI. viðauka, þannig að ekki fari á milli mála að ef efni falla ekki undir samræmda hættuflokkun skuli flokka þau í samræmi við II. hluta reglugerðar (EB) nr. 1272/2008. Athugasemdum er því skipt út og nýjar athugasemdir koma í staðinn.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð er breytt í samræmi við viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008, þar sem athugasemdum við færslur og athugasemdum um auðkenningu, flokkun og merkingu efna varðandi samræmda hættuflokkun og merkingu hættulegra efna í 1 hluta VI. viðauka er skipt út fyrir nýjar. Breytingarnar fela í sér að bæta orðalag í athugasemdum til að minnka óvissu þannig að ekki fari á milli mála að ef efni falla ekki undir samræmda hættuflokkun, t.d þegar efni eru í lægri prósentustyrk en tekið er fram í lágmarksmörkum fyrir efni sem falla undir samræmda hættuflokkun, skuli flokka þau í samræmi við II. hluta reglugerðar (EB) nr. 1272/2008.
Í 1.1.3.1 í er athugasemdum J-R í 1 hluta í VI. viðauka er skipt út fyrir nýjar sem tilgreina að samræmd hættuflokkun fyrir krabbameinsvalda eða stökkbreytivalda gildi fyrir tilgreind efni (benzen, 1,3 bútadíen, dímetýlsúlfíðúrdráttur, bensó(a)pýren) nema þegar þau eru undir tilgreindum styrkleikamörkum eða ef allt hreinsunarferlið er þekkt og þá skal jafnframt flokka efnin í samræmi við II. hluta reglugerðar (EB) nr. 1272/2008. Ennfremur er bætt við athugasemd R, að mæla þurfi lengd trefja með aðferð A.22 í viðauka við reglugerð (EB) nr. 440/2008) út frá reglugerð (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).
Í 1.1.3.2 er athugasemdum 8 og 9 skipt út fyrir nýjar þar sem fram kemur að:
8. Að flokkun efnis sem krabbameinsvalds eigi við nema að hægt sé að sýna fram á að hæsti mögulegi fræðilegi styrkur af losanlegu formaldehýði, óháð uppruna, í efnablöndu sem er sett á markað sé minni en 0,1%.
9. Að flokkun efnis sem stökkbreytivalds skal eiga við nema að hægt sé að sýna fram á að hæsti mögulegi fræðilegi styrkur af losanlegu formaldehýði, óháð uppruna, í efnablöndu sem er sett á markað sé minni en 1%.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nýjum færslum er bætt í VI. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1272/2008 í samræmi við framangreint.

Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem innleiðir reglugerð Evrópusambandsins nr. 1272/2008 (CLP) hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32021R0643 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 133, 20.4.2021, p. 5 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2021)441 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 13, 8.2.2024, p. 35 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/311, 8.2.2024 |