Nýfæði - 32021R0670

Commission Implementing Regulation (EU) 2021/670 of 23 April 2021 authorising the placing on the market of Schizochytrium sp. (WZU477) oil as a novel food under Regulation (EU) 2015/2283 of the European Parliament and of the Council, and amending Commission Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/670 frá 23. apríl 2021 um leyfi til að setja á markað olíu úr Schizochytrium sp. (WZU477) sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 202/2021
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/670 um leyfi til markaðssetningar á Schizochytrium sp. (WZU477) olíu sem nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.
Sótt hefur verið um leyfi til breytinga á notkunarskilyrðum fyrir nýfæðið Schizochytrium olíu í samræmi við 10. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2015/2283. Umsækjandi sótti um leyfi til að nota Schizochytrium sp. olíu í matvæli sem ætluð eru ungbörnum og smábörnum eins og skilgreint er í reglugerð þingsins og ráðsins nr. 609/2013. Notast er við stofninn WZU477af Schizochytrium.
Framkvæmdastjórnin óskaði umsagnar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) sem skilaði áliti og telur að efnið sé öruggt til notkunar í þær tegundir matvæla og í því magni sem sótt var um leyfi fyrir. Álit EFSA nær eingöngu til afurða af stofninum WZU477 en gögnin sem umsækjandi notar gefa ekki upplýsingar til að álykta um aðra stofna af Schizochytrium.
Umsækjandi fór fram á að hluti af rannsóknunum sem umsóknin byggist á njóti gagnaverndar, sbr. gr. 26.1 í reglugerð 2015/2283 og að umsækjandi hafi einkarétt á að vísa í hluta af þeim rannsóknum sem umsóknin byggir á, sbr. gr. 26.2 í reglugerð 2015/2283.
Eftir að hafa skoðað gögn málsins ákvað framkvæmdastjórnin að fallast á beiðnina og veitti umsækjanda einkarétt á að vísa til fyrrgreindra rannsókna. Einkaleyfið gildir í fimm ár frá gildistöku þessarar reglugerðar. Því er umsækjenda veitt einkaleyfi á að markaðssetja nýfæði byggt á þessari reglugerð til fimm ára. Einkarétturinn kemur hins vegar ekki í veg fyrir að aðrir aðilar geti sótt um leyfi fyrir sama nýfæði ef umsókn er byggð á löglega fengnum gögnum.
Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018 og með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R0670
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 141, 26.4.2021, p. 14
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D071974/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 13, 8.2.2024, p. 31
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/316, 8.2.2024