Útdráttur
Með gerðinni er breytt tveimur tæknilegum viðaukum við reglugerð (ESB) 2018/858. Þessir viðaukar eiga annars vegar við kröfur til þeirra sem framkvæma ESB gerðarviðurkenningar (viðauki II) og hins vegar kröfur til framleiðenda (viðauki VII). Engar heildargerðarviðurkenningar eru framkvæmdar hér á landi og því hefur breytingin ekki áhrif hér. Kostnaður óverulegur
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Með þeirri gerð sem hér er til skoðunar er breytt reglugerð (ESB) 2018/858 OF THE EUROPEAN PARLIAMENT AND OF THE COUNCIL of 30 May 2018 on the approval and market surveillance of motor vehicles and their trailers, and of systems, components and separate technical units intended for such vehicles, amending Regulations (EC) No 715/2007 and (EC) No 595/2009 and repealing Directive 2007/46/ECÍ reglugerð (ESB) 2018/858 er kveðið á um að efla markaðseftirlit, bæði með nýjum ökutækjum og þeim sem í umferð eru, sem og að efla upplýsingaflæði og samstarf stjórnvalda aðildarríkja sem fara með markaðseftirlit.Með þessari reglugerð er breytt viðaukum II og VII við reglugerð (ESB) 2018/858. Í viðauka II er kveðið á um kröfur til ESB gerðarviðurkenninga á ökutækjum, kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum. Í viðauka VII er kveðið á um gerðir þar sem heimilt er að framleiðandi geti tilnefnt aðila „in-house“ hjá sér sem skilgreindur er sem tækniþjónusta, e. Regulatory acts for which a manufacturer may be designated as a technical service.Efnisútdráttur: Líkt og fram kemur í markmið sem að er stefnt er með gerðinni breytt reglugerð (ESB) 2018/858. Tveimur tæknilegum viðaukum er breytt. Þessir viðaukar eiga annars vegar við kröfur til þeirra sem framkvæma ESB gerðarviðurkenningar (viðauki II) og hins vegar kröfur til framleiðenda (viðauki VII). Rétt er að benda á að í viðaukum eru tilvísanir til reglugerða sem settar eru af efnahagsnefnd SÞ í Evrópu (svonefndra UN/ECE reglugerð) á grundvelli alþjóðasamnings sem Ísland er ekki aðili að en sem ESB er aðili að.Engar heildargerðarviðurkenningar eru framkvæmdar hér á landi og því hefur breytingin ekki áhrif hér.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engir framleiðendur ökutækja, kerfa, íhluta eða aðskildra tæknieininga eru til staðar á Íslandi og því hefur sú breyting engin áhrif hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Afmarkaða lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.Þar sem reglugerð um (ESB) 2018/858 hefur enn ekki verið tekin upp í EES samninginn og því ekki innleidd á Íslandi, mun sú gerð sem hér um ræðir væntanlega einnig bíða þangað til.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Umhverfisráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur, innflytjendur og dreifingaraðilar ökutækja, eigendur ökutækja, Samgöngustofa, skoðunarstofur ökutækja.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: