32025D1262

Commission Implementing Decision (EU) 2025/1262 of 27 June 2025 on the non-approval of certain active substances for use in biocidal products in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felur í sér að samþykkja ekki þau fimm virku efni, sem skráð eru í viðauka við ákvörðunina, sem fyrirliggjandi virk efni til notkunar í sæfivörur í þeim vöruflokkum sem þar eru tilgreindir.
Ákvörðunin öðlaðist gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Virku efnin eru ekki samþykkt í tilgreindum vöruflokkum annars vegar vegna þess að enginn þátttakandi hafði lýst yfir vilja til að taka yfir hlutverk þátttakanda vegna samsetningar efnis/vöruflokks sem hefur ekki áður verið tekið yfir eða hins vegar vegna þess að þátttakendur sem styðja samsetningu efnis/vöruflokks höfðu dregið eða eru talin hafa dregið þátttökuna tímanlega til baka, í samræmi við 1. og 2. mgr. 14. gr., 3. mgr. 12. gr. og a)- og b)-lið 1. mgr. 20. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1062/2014.Samsetningar virks efnis/vöruflokks sem eru ekki samþykktar:1,2-bensísóþíasól-3(2H)-ón (BIT) í vöruflokki 2klórdíoxíð í vöruflokki 12pýriþíónsink í vöruflokkum 2 og 10Myndefni efnahvarfs 5,5-dímetýlhýdantóíns, 5-etýl-5-metýlhýdantóíns við bróm og klór (DCDMH) í vöruflokki 11Myndefni efnahvarfs 5,5-dímetýlhýdantóíns, 5-etýl-5-metýlhýdantóíns við klór (DCEMH) í vöruflokki 11

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025D1262
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1262, 1.7.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D107579/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar