32025R1282
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1282 of 2 July 2025 approving 2-methyl-2,3-dihydro-1,2-thiazol-3-one hydrochloride as an active substance for use in biocidal products of product-type 6 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin felur í sér að samþykkja 2-metýl-2,3-díhýdró-1,2-þíasól-3-ónhýdróklóríð, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 6 að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru fram í viðauka við reglugerðina. Reglugerðin öðlaðist gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Samkvæmt áliti Efnastofnunar Evrópu (ECHA), sem samþykkt er af sæfivörunefndinni og byggt á matsskýrslu Slóveníu sem lögbærs matsyfirvalds, má gera ráð fyrir að sæfivörur í vöruflokki 6, sem innihalda virka efnið 2-metýl-2,3-díhýdró-1,2-þíasól-3-ónhýdróklóríð, muni uppfylla skilyrði b)-liðar 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Því sé rétt að samþykkja efnið að því gefnu að ákveðin skilyrði varðandi notkun þess sé uppfyllt, þ.á.m. ákveðin skilyrði varðandi markaðssetningu meðhöndlaðra vara sem innihalda eða hafa verið meðhöndlaðar með efninu.Að auki skal aðili sem setur á markað málningu, sem hefur verið meðhöndluð með eða inniheldur 2-metýl-2,3-díhýdró-1,2-þíasól-3-ónhýdróklóríð í þeim styrkleika að málningin hættuflokkist sem húðnæmir, 1. undirflokkur, tryggja að málningunni fylgi viðeigandi hlífðarhanskar í samræmi við Evrópustaðal EN 374 eða sambærilega og að fram komi á merkimiða að nota eigi hlífðarhanska við notkun vörunnar.Dagsetning samþykkis er 1. ágúst 2025 og lokadagur samþykkis er 31. júlí 2035.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þarf reglugerðina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R1282 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1282, 3.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D107575/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
