Ákvörðun um reglur um framkvæmd útreikninga, sannprófunar og skila á upplýsingum vegna sérsöfnunar á einnota umbúðum fyrir drykkjarvörur úr plasti - 32021D1752

Commission Implementing Decision (EU) 2021/1752 of 1 October 2021 laying down rules for the application of Directive (EU) 2019/904 of the European Parliament and of the Council as regards the calculation, verification and reporting of data on the separate collection of waste single-use plastic beverage bottles

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 175/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin setur reglur um framkvæmd útreikninga, sannprófunar og skil á upplýsingum vegna sérsöfnunar á einnota umbúðum fyrir drykkjarvörur úr plasti (sbr. gr. 9(3) og gr. 13(4) í tilskipun 2019/904/ESB) í átt að þeim söfnunarmarkmiðum sem sett eru í tilskipuninni (77% árið 2025 og 90% árið 2029).

Nánari efnisumfjöllun

Ákvörðunin setur reglur um framkvæmd útreikninga, sannprófun og skil upplýsinga og gagna vegna sérsöfnunar á einnota umbúðum fyrir drykkjarvörur úr plasti sem kveðið er á um í gr. 9(3) og gr. 13(4) tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Í 9. gr. tilskipunar 2019/904/ESB eru sett markmið um að sérstök söfnun fyrir endurvinnslu á einnota drykkjarumbúðum úr plasti (sbr. f-hluta viðauka tilskipunar) verði að lágmarki 77% á ári fyrir 2025 og að lágmarki 90% á ári fyrir árið 2029.Samkvæmt gr. 13(1) í 2019/904/ESB eru fyrstu skil á upplýsingum vegna söfnunar á árinu 2023 og skal skila í síðasta lagi 18 mánuðum eftir lok þess árs. Lagt er til að Endurvinnslan taki mið af ákvörðuninni við skil á gögnum og upplýsingum frá og með 2023 sbr. a. lið 10. mgr. 2. gr. breytingarlaga nr. 103/2021.Vakin er athygli á að núverandi fyrirkomulag á upplýsingaskilum frá Endurvinnslunni fer í gegnum Úrvinnslusjóð en skv. breytingarlögunum sem taka gildi 1. jan 2023 skal Endurvinnslan skila beint til Umhverfisstofnunar.Nánar um efni ákvörðunar:1. gr. fjallar um aðferðir við útreikninga og skýrslugjöf á magni á sérsöfnuðum einnota drykkjarumbúðum. Magn sérsafnaðra drykkjarumbúða úr plasti, sem útlistaðar eru í F-hluta viðauka tilskipunar (ESB) 2019/904, er reiknað með því að deila þyngd þeirra í þyngd þeirra einnota drykkjarumbúða sem settar eru á markað og sett fram sem prósentutala. Þá skulu aðildarríkin beita þeim formúlum sem kveðið er á um í 1. viðauka.2. gr. fjallar um aðferðir til að ákvarða þyngd sérsafnaðra drykkjarumbúða, þ.e. hvað er talið með og hvað ekki (1.-3. mgr), hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að teljast sérsafnaðar umbúðir (4.-5. mgr.), hvar og hvernig þyngd sérsafnaðra umbúða er mæld eða áætluð út frá fjölda eða hlutfalli og sannprófun þess (6.-8. mgr.). 3. gr. fjallar um aðferðir við ákvörðun á þyngd einnota drykkjarumbúða sem settar eru á markað, þ.e. hvaða umbúðir teljast með, hvernig flutningur milli landa er tekinn með í reikninginn og hvernig skal meta magn markaðssettra umbúða út frá magni úrgangs.4. gr. fjallar um aðferðir við sýnatöku og greiningu á samsetningu úrgangs til að reikna þyngd einnota drykkjarumbúða í blönduðum heimilisúrgangi eða sem er fleygt á víðavangi, m.a. kannanir og dæmigert úrtak.5. gr. fjallar um gildistöku ákvörðunarinnar.Í 1. viðauka eru formúlur til að reikna magn/hlutfall sérsafnaðra einnota drykkjarumbúða.Í 2. viðauka er snið/fyrirkomulag fyrir skýrslugjöf.Í 3. viðauka er snið fyrir gæðaskýrslu.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf nýja reglugerð. Lagastoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Hvaða hagsmunaaðilar Endurvinnslan hf.| Úrvinnslusjóður

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Hagstofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021D1752
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 349, 4.10.2021, p. 19
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 66, 13.10.2022, p. 16
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 267, 13.10.2022, p. 18