COM(2015) 635

Proposal for a Directive of the European Parliament and the Council on certain aspects concerning contracts for the online and other distance sales of goods


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Tillaga dregin til baka af ESB
Svið (EES-samningur, viðauki) 19 Neytendavernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða tillögu að tilskipun sem nú er til meðferðar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráðinu. Í tillögunni er kveðið á um skilyrði til neytendasamninga sem gerðir eru í fjarsölu við kaup á vörum. Nánar tiltekið er um að ræða reglur um hvernig bregðast beri við sé vara gölluð, úrræði neytenda sé um vanefndir að ræða og réttarreglur sem tryggja að unnt sé að nýta vanefndaúrræði.

Nánari efnisumfjöllun

Um er að ræða tillögu að tilskipun sem nú er til meðferðar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráðinu. Í tillögunni er kveðið á um skilyrði til neytendasamninga sem gerðir eru í fjarsölu við kaup á vörum. Nánar tiltekið er um að ræða reglur um hvernig bregðast beri við sé vara gölluð, úrræði neytenda sé um vanefndir að ræða og réttarreglur sem tryggja að unnt sé að nýta vanefndaúrræði. Fyrirhuguð tilskipun felur í sér breytingar á kröfurétti aðildarríkjanna vegna þeirrar gerðar samninga sem um ræðir.
Í tilskipuninni er kveðið á um allsherjarsamræmingu en af því leiðir að lög aðildarríkjanna mega ekki innihalda efnisákvæði sem ganga skemur eða lengra en ákvæði hennar. Verði tilskipunin samþykkt óbreytt mun það krefjast breytinga á íslenskum lögum. Ákvæði um galla og vanefndaúrræði íslensks kröfuréttar vegna samninga neytenda um kaup á vörum er að finna í lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Ákvæði tilskipunarinnar eru í megindráttum í samræmi við gildandi ákvæði laganna um galla og vanefndaúrræði neytenda í neytendasamningum við kaup á vörum. Í 2. mgr. 27. gr. laga nr. 48/2003 er kveðið á um fimm ára ábyrgðartíma hlutar sem ætlaður er lengri endingartími en fimm ár og er ákvæðið hliðstætt ákvæði norsku neytendakaupalaganna. Í tilskipuninni er ekki gert ráð fyrir lengri ábyrgðartíma en til tveggja ára og er kveðið á um það í 3. mgr. 8. gr. og 14. gr. hennar.
Ísland og Noregur vilja halda sínum ákvæðum óbreyttum og munu leggja áherslu á að samskonar réttur verði tryggður í þessari tillögu að tilskipun. Einnig þarf að kanna vandlega hvort þörf sé á öðrum minniháttar breytingum á ákvæðum laga nr. 48/2003 svo fyrirhuguð tilskipun teljist rétt innleidd ef hún verður samþykkt endanlega.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi. Í 2. mgr. 27. gr. laga nr. 48/2003 er kveðið á um fimm ára ábyrgðartíma hlutar sem ætlaður er lengri endingartími en fimm ár.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Sjá efnisútdrátt

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Neytendastofa

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2015) 635
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu