32013R0396
Commission Implementing Regulation (EU) No 396/2013 of 30 April 2013 amending Regulation (EU) No 1014/2010 as regards certain requirements for the monitoring of CO2 emissions from new passenger cars
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 396/2013 frá 30. apríl 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1014/2010 að því er varðar tilteknar kröfur um vöktun á koltvísýringslosun frá nýjum farþegabifreiðum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn en er ekki lengur í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 109/2017 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Nei |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmið sem að er stefnt með reglugerð 443/2009 er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá bifreiðum sem framleiddar eru í aðildarríkjunum.
Í kjölfar eftirlits með losun gróðurhúsalofttegunda frá nýjum farþegabifreiðum á árunum 2010 og 2011 var viðauka II við reglugerð nr. 443/2009 breytt til þess að einfalda samantekt á upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda og til þess að auðvelda framleiðendum að veita þessar upplýsingar með skilvirkum hætti. Til að eftirlit með losun gróðurhúsalofttegunda verði skilvirkt þykir því viðeigandi að samstilla reglugerð nr. 1014/2010 við þær breytingar sem gerðar voru á reglugerð nr. 443/2009 með tilliti til slíks eftirlits.

Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt með reglugerð 443/2009 er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá bifreiðum sem framleiddar eru í aðildarríkjunum.
Í kjölfar eftirlits með losun gróðurhúsalofttegunda frá nýjum farþegabifreiðum á árunum 2010 og 2011 var viðauka II við reglugerð nr. 443/2009 breytt til þess að einfalda samantekt á upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda og til þess að auðvelda framleiðendum að veita þessar upplýsingar með skilvirkum hætti. Til að eftirlit með losun gróðurhúsalofttegunda verði skilvirkt þykir því viðeigandi að samstilla reglugerð nr. 1014/2010 við þær breytingar sem gerðar voru á reglugerð nr. 443/2009 með tilliti til slíks eftirlits. Með gerðinni er því verið að uppfæra hvaða upplýsingar eiga að koma um nýjar bifreiðar í þeim tilgangi að samræma kröfur er tengjast losun gróðurhúsalofttegunda við áðurnefnda reglugerð 443/2009.
Helstu atriði sem breytast er í fyrsta lagi að framleiðandi skal skrá upplýsingar um breidd öxla ökutækis. Í öðru lagi fjölda ökutækja með útblástur undir 50 g CO2/km, sbr. 5. gr. reglugerðar 443/2009. Í þriðja lagi nákvæmar upplýsingar um CO2 útblástur ökutækja sem notast við ethanol orkugjafa, án þeirrar 5% lækkunar sem heimil er fyrir þennan orkugjafa, sbr. 6. gr. reglugerðar 443/2009. Í fjórða lagi skulu aðildarríki gefa upp útblásturstölur ökutækja, sem bera nýsköpun í tækni, án þeirra áhrifa sem tæknin hefur, sbr. 12. gr. reglugerðar 443/2009. Ennfremur skulu aðildarríki tilkynna framkvæmdastjórninni um fjölda ökutækja sem falla undir gerðarviðurkenningu skv. 23. og 24. gr. tilskipunar 2007/46/EB, sbr. viðauki II við reglugerð 443/2009. Að lokum eru tilteknar þær merkingar sem aðildarríki skulu fylgja við eftirlit með útblæstri ökutækja. Engin áhrif hér á landi.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | 822/2004 um gerð og búnað ökutækja |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32013R0396 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 120, 1.5.2013, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 37, 7.6.2018, p. 9 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 142, 7.6.2018, p. 41 |
Breytt af (Modified by)
| 32021R0392 | implicitly repeals | Commission Implementing Regulation (EU) 2021/392 of 4 March 2021 on the monitoring and reporting of data relating to CO2 emissions from passenger cars and light commercial vehicles pursuant to Regulation (EU) 2019/631 of the European Parliament and of the Council and repealing Commission Implementing Regulations (EU) No 1014/2010, (EU) No 293/2012, (EU) 2017/1152 and (EU) 2017/1153 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32010R1014 | amends | Commission Regulation (EU) No 1014/2010 of 10 November 2010 on monitoring and reporting of data on the registration of new passenger cars pursuant to Regulation (EC) No 443/2009 of the European Parliament and of the Council | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |
| 32009R0443 | based on | Regulation (EC) No 443/2009 of the European Parliament and of the Council of 23 April 2009 setting emission performance standards for new passenger cars as part of the Community’s integrated approach to reduce CO2 emissions from light-duty vehicles | Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi |