Breyting á ákvörðun 1313/2013/ESB um áætlun ESB á vettvangi almannavarna - COM(2019) 125
Proposal for a Decision of the European Parliament and of the Council amending Decision No 1313/2013/EU of the European Parliament and of the Council on a Union Civil Protection Mechanism
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga dregin til baka af ESB |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, bókun) | 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með ákvörðun 2019/420 dags. 13. mars sl. gerðu Evrópuþingið og ráðið breytingar á ákvörðun 1313/2013/ESB um áætlun ESB á vettvangi almannavarna (e. Union Civil Protection Mechanism eða UCPM). Markmiðið með breytingunum er að auka viðbragðsgetu almannavarnakerfis ESB vegna síaukinna hamfara í Evrópu, s.s. flóða, jarðskjálfta, aftaka veðurs, skógarelda, eldgosa og afleiðinga loftslagsbreytinga.
Nánari efnisumfjöllun
Evrópusambandið hefur ákveðið að styrkja hamfarastjórnun í Evrópu með því að setja á stofn skilgreindar varabirgðir af björgum svonefnt „rescEU“. RescEU á að nýtast þegar bregðast þarf við hamförum í Evrópu og ríkin sem lenda í hamförunum hafa ekki næga getu til að bregðast við og björgum úr hinum fyrirfram skilgreinda grunni þrýtur. RescEU mun samanstanda af viðbragðsgetu og björgum sem eiga að gera Evrópusambandinu kleift að takast á við hamfarir sem hafa á síðustu árum verið einkennandi fyrir Evrópu t.d. með flugvélum með slökkvigetu vegna skógar- gróður- og kjarrelda, öflugum dælum vegna flóða, getu til leitar og björgunar, getu til að takast á við heilbrigðisvá (neyðarteymi og færanleg sjúkrahús) svo eitthvað sé nefnt. Þessum björgum verður dreift meðal þátttökuríkja í almannavarnakerfinu og miðast við svæði með mikla áhættu á hamförum hverju sinni. Til að byrja með verða bjargir vegna skógarelda skoðaðar, síðan aðrar hamfarir sem áhættumat ríkjanna kallar eftir.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaðurinn við þátttöku í þessari áætlun ESB kemur út úr fjárlagalið hjá menntamálaráðuneytinu. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Samkvæmt upplýsingum frá EFTA skrifstofunni er framangreind breyting á áætlun ESB á vettvangi almannavarna (UCPM) breyting á áætlun sem Ísland hefur þegar skuldbundið sig til þátttöku í og hefur gildi 2014-2020. Þegar Ísland hóf þátttöku voru áætlaðar fjárskuldbindingar Íslands vegna áætlunarinnar 294,742 evrur (sirka 40.5 mkr. miðað við gengi dagsins í dag). Ísland hefur val á milli þess að samþykkja til lagða breytingu eða hætta UCPM þátttökunni. Ekki eru til fordæmi fyrir því að ríki hætti þátttöku á miðju tímabilinu. Breytingin felur í sér hækkun á fjárskuldbindingum Íslands vegna áætlunarinnar að hámarki 287,879 evrur (39.6 mkr. miðað við gengið í dag). Samkvæmt útreikningum EFTA skrifstofunnar mun Ísland halda áfram að greiða 70-100 þúsund evrur á ári þangað til áætluninni lýkur og líklegt er að síðustu greiðslur verði árið 2025. Svo sem að framan greinir er markmiðið með ákvörðun 2019/420 styrking á viðbragðsgetu og aukning á vörnum og viðbúnaði vegna hamfara. Þar sem um er að ræða styrkingu á almannavarnakerfi Evrópu hefur gerðin í för með sér nokkra aukningu á fjárskuldbindingum Íslands. Um leið eru meiri líkur á að almannavarnakerfi Evrópusambandsins og lönd innan þess styrkist og geti aðstoðað hvert annað í viðbrögðum við meiri háttar hamförum, hvort sem þær verða hér á landi eða annarsstaðar. Verði meiri háttar hamfarir á Íslandi er almannavarnakerfi Evrópusambandsins betur í stakk búið að veita þá aðstoð sem Ísland gæti þurft á að halda. Almannavarnastarf Evrópu er mjög mikilvægt fyrir Ísland þar sem í því felst þjálfun og æfingar fyrir viðbragðsaðila, rannsóknir og þekking sem gagnast í almannavarnakerfinu. Síðast en ekki síst er aðgangur almannavarna á Íslandi að þeim björgum og úrræðum sem almannavarnakerfið í Evrópu hefur upp á að bjóða. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Dómsmálaráðuneytið |
|---|
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2019) 125 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
