32015R1018

Commission Implementing Regulation (EU) 2015/1018 of 29 June 2015 laying down a list classifying occurrences in civil aviation to be mandatorily reported according to Regulation (EU) No 376/2014 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 frá 29. júní 2015 um skrá þar sem flokkuð eru atvik í almenningsflugi sem falla undir tilkynningarskyldu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 276/2015
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið er að stuðla að fækkun flugslysa og manntjóns þeim tengdum með endurbótum á núgildandi tilkynningakerfum bæði í hverju landi fyrir sig sem og samevrópskum kerfum.
Það markmið með reglugerð 376/2014, sem hér er verið að breyta, var að vera grundvöllur þess að í viðeigandi tilfellum verði gripið til öryggisráðstafana tímanlega og á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga. Jafnframt á að tryggja áframhaldandi framboð á upplýsingum með því að festa í sessi reglur um þagnarskyldu og um viðeigandi notkun upplýsinga, og með samræmdum hætti að styrkja vernd skýrslugjafa og manna sem nefndir eru í atvikaskýrslum. Eina markmið atvikatilkynningar er að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Markmiðið er ekki að greina sök og ábyrgð. Nota á flugatvik til að leiðrétta öryggisvankanta og koma í veg fyrir að atvik endurtaki sig. Með það að markmiði á að tryggja að viðeigandi upplýsingum um almenningsflug sé dreift, safnað, geymdar, verndaðar, deilt og þær greindar.

Nánari efnisumfjöllun

Markmiðið er að stuðla að fækkun flugslysa og manntjóns þeim tengdum með endurbótum á núgildandi tilkynningakerfum bæði í hverju landi fyrir sig sem og samevrópskum kerfum.
Það markmið með reglugerð 376/2014, sem hér er verið að breyta, var að vera grundvöllur þess að í viðeigandi tilfellum verði gripið til öryggisráðstafana tímanlega og á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga. Jafnframt á að tryggja áframhaldandi framboð á upplýsingum með því að festa í sessi reglur um þagnarskyldu og um viðeigandi notkun upplýsinga, og með samræmdum hætti að styrkja vernd skýrslugjafa og manna sem nefndir eru í atvikaskýrslum. Eina markmið atvikatilkynningar er að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Markmiðið er ekki að greina sök og ábyrgð. Nota á flugatvik til að leiðrétta öryggisvankanta og koma í veg fyrir að atvik endurtaki sig. Með það að markmiði á að tryggja að viðeigandi upplýsingum um almenningsflug sé dreift, safnað, geymdar, verndaðar, deilt og þær greindar.
Með þessari framkvæmdarreglugerð er innleidd mismunandi flokkun flugatvika, sem vísa skal til þegar flugatvik sem tilkynna ber eru tilkynnt. Flokkarnir eru eftirfarandi:
1. Flugatvik sem tengjast rekstri loftfars
2. Flugatvik sem tengjast tæknilegu ástandi, viðhaldi og viðgerðum á loftfari
3. Flugatvik sem tengjast flugleiðsöguþjónustu og -aðstöðu
4. Flugatvik sem tengjast flugvöllum og flugafgreiðslu
5. Flugatvik sem tengjast loftförum sem ekki eru flókin, vélknúin loftför, þar á meðal svifflugvélar og fis.
Á meðal þess sem þar kemur fram er að flugmálastjórnum verður gert skylt að setja upp kerfi fyrir voluntary reporting, og krafa er gerð um að áhættuflokkun flugatvika verði að evrópskri fyrirmynd sem er frá Flugöryggisstofnun Evrópu.
Þá kemur þar fram að flugrekendum verður gert skylt að senda tilkynningar beint inn í ECCAIRS gagnagrunninn European Coordination Centre for Accident and Incident.
Flugrekendum er kunnugt um umræddar breytingar, en nánari upplýsingum verður komið á framfæri við þá innan skamms.
Kostnaður við innleiðingu á umræddri framkvæmdarreglugerð snýr að því að flugrekendur þurfa að uppfæra öryggisstjórnunarkerfi sín, en sá kostnaður verður að teljast minni háttar.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta um breytingu á reglugerð nr. 1248/2014, um rannsóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32015R1018
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 163, 30.6.2015, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D037717/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 38, 22.6.2017, p. 66
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 161, 22.6.2017, p. 64

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Breytt af (Modified by)

32022R0003 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2022/3 of 4 January 2022 correcting certain language versions of Annex II to Implementing Regulation (EU) 2015/1018 laying down a list classifying occurrences in civil aviation to be mandatorily reported according to Regulation (EU) No 376/2014 of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32014R0376 based on Regulation (EU) No 376/2014 of the European Parliament and of the Council of 3 April 2014 on the reporting, analysis and follow-up of occurrences in civil aviation, amending Regulation (EU) No 996/2010 of the European Parliament and of the Council and repealing Directive 2003/42/EC of the European Parliament and of the Council and Commission Regulation (EC) No 1321/2007 and (EC) No 1330/2007 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)