F-gas - 32015R2066

Commission Implementing Regulation (EU) 2015/2066 of 17 November 2015 establishing, pursuant to Regulation (EU) No 517/2014 of the European Parliament and of the Council, minimum requirements and the conditions for mutual recognition for the certification of natural persons carrying out installation, servicing, maintenance, repair or decommissioning of electrical switchgear containing fluorinated greenhouse gases or recovery of fluorinated greenhouse gases from stationary electrical switchgear


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2066 frá 17. nóvember 2015 um að setja, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 517/2014, lágmarkskröfur og skilyrði fyrir gagnkvæmri viðurkenningu á vottun einstaklinga sem annast uppsetningu, þjónustu, viðhald, viðgerðir eða úreldingu rafknúins rofbúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða sem endurheimta flúoraðar gróðurhúsalofttegundir úr föstum rafknúnum rofbúnaði
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 161/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin byggir ofan á þann grunn sem settur var í reglugerð (EB) nr. 305/2008. Sú gerð tók til endurheimtar flúoraðra gróðurhúsa¬lofttegunda úr háspennurofbúnaði. Þessi kemur í stað þeirrar eldri og auk endurheimtar tekur hún til þess að setja upp, þjónusta, viðhalda, gera við og taka úr notkun rofbúnað sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir. Að auki gildir þessi gerð ekki aðeins um háspennurofbúnað, heldur allan rofbúnað.

Nánari efnisumfjöllun

Einstaklingar sem sinna ofangreindum verkum skulu hafa vottun. Matsaðili sér um að prófa bók- og verklega færni og þekkingu í samræmi við I. viðauka reglugerðarinnar. Matsaðilinn skal halda skrá um niðurstöður mats skv. ákvæðum í reglugerðinni. Vottun einstaklinga, sem staðist hafa mat hjá matsaðila, skal vera í höndum vottunaraðila sem kveðið er á um í landslögum eða er tilgreindur af lögbæru stjórnvaldi. Vottunaraðili getur líka verið matsaðili.

Vottunaraðili skal gefa út skírteini til handa einstaklingum sem staðist hafa mat. Útlistað er hvaða upplýsingar skuli, að lágmarki, koma fram á skírteininu. Þeir sem hafa þegar fengið vottun skv. reglugerð (EB) nr. 305/2008 skulu teljast hæfir til að framkvæma öll verk sem þessi gerð tekur til og vottunaraðila er heimilt að gefa út skírteini þess efnis án frekari prófa.

Eigi síðar en 1. janúar 2017 skulu aðildarríkin tilkynna til framkvæmda-stjórnarinnar hvaða aðili annist vottanir í viðkomandi ríki auk heitis skírteinanna sem gefin verða út.

Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Þó skal krafan um vottun skv. þessari reglugerð umfram þá kröfu sem fram kemur í reglugerð (EB) nr. 305/2008 ekki taka gildi fyrr en 1. júlí 2017.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Eðlilegast er að innleiða þessa reglugerð í sömu reglugerð og reglugerð (ESB) nr. 517/2014. Lagastoð er í stafliðum b, c og d 10. töluliðar 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Rétt er að taka fram að reglugerð (EB) nr. 305/2008, sem felld er úr gildi með þessari reglugerð, er innleidd í 11. gr. reglugerðar nr. 834/2010 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, sem einnig innleiðir eldri reglugerð (EB) nr. 842/2006 um tilteknar, flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, sem felld er úr gildi með nýju móðurgerðinni (ESB) nr. 517/2014.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32015R2066
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 301, 18.11.2015, p. 22
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D041465/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 74, 10.11.2022, p. 43
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 291, 10.11.2022, p. 42