32016D0687
Commission Implementing Decision (EU) 2016/687 of 28 April 2016 on the harmonisation of the 694-790 MHz frequency band for terrestrial systems capable of providing wireless broadband electronic communications services and for flexible national use in the Union
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 242/2016 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Á heimsráðstefnu Alþjóðafjarskiptasambandsins, International Telecommunications Union – ITU, sem haldin var í nóvember 2015 var m.a. samþykkt tækni- og regluumhverfi fyrir notkun 700 MHz (694 – 790 MHz) tíðnisviðsins fyrir háhraða farnetsþjónustu. Áður hefur komið fram á vegum Evrópusambandsins, m.a. í svokallaðri Lamy skýrslu, tillaga um notkun 700 MHz tíðnisviðsins fyrir háhraða farnet. Auk þess hefur RSPG, Radio Spectrum Policy Group, verið sama sinnis. Í kjölfarið er því nauðsynlegt að samræma aðgerðir innan Evrópusambandsins til að tryggja þessar áætlanir og að þeim megi framfylgja í truflanalausu umhverfi í aðildarlöndum þess.
Nánari efnisumfjöllun

Ákvörðunin sem hér um ræðir felur í sér samhæfingu þeirrar tæknilegu ákvörðunar sem vísað er til hér að ofan innan sambandslandanna til að stuðla að og tryggja að uppbygging háhraða farneta á 694-790 MHz (700 MHZ) tíðnibandinu verði í samræmi við hana.
Reglurnar taka til þrenns konar notkunar:
1. Þráðlauss búnaðar samanber PMSE (e. Program Making and Special Events) sem er búnaður til að senda stafrænt/hliðrænt hljóðmerki þráðlaust á milli takmarkaðs fjölda senda og móttakara s.b. þráðlausra míkrófóna eða annars búnaðar sem aðallega er notaður við efnisframleiðslu fyrir sjónvarp eða t.d. tónleika og listrænar uppákomur.
2. Þráðlauss búnaðar samanber PPDR (e. Public Protection and Disaster Relief) sem er t.d. þráðlaus búnaður til nota af opinberum aðilum svo sem Almannavörnum við öryggis-, eftirlits- og hernaðarframkvæmdir.
3. þráðlauss búnaðar til samskipta á milli tæknikerfa eða kerfiseininga samanber M2M (e. Maschine-to-Maschine) en hér undir fellur einnig hið svokallaða IoT (e. Interent of Things). IoT inniheldur að smæstu kerfiseiningar geti talað saman yfir alheimsnetið (internetið).
Þegar aðildarríki úthluta 700 MHz tíðnibandinu fyrir aðra notkun en aflmikla senda til sjónvarpsdreifingar þarf að huga að eftirfarandi:
a. Losa þarf um og úthluta tíðnisviðinu 703-733 MHz og 758-788 MHz, fyrir háhraða farnet í samræmi við tækniskilmála sem getið er um í viðauka ákvörðunarinnar.
b. Losun og úthlutun þess hluta 700 MHz tíðnibandsins sem ekki er tilgreindur í a-lið skal fara fram samkvæmt vali og ákvörðun hvers lands fyrir sig til notkunar í samræmi við tækniskilmála sem tilgreindir eru í viðauka.
Hér á landi hefur PFS þegar gert ráð fyrir losun 694–790 MHz tíðnisviðsins til að því megi úthluta til notkunar fyrir háhraða farnetsþjónustu
Aðildarríki skulu tryggja að þau kerfi sem talin eru upp í (a)- og (b)-liðum hér að ofan orsaki ekki truflanir á þjónustum á aðliggjandi 470-694 MHz tíðnisviðinu, þ.e. á stafrænu sjónvarpi sem og á þráðlausum hljóðflutningsbúnaði, Program Making and Special Events – PMSE, í samræmi við viðkomandi lög sambandsins.
Á Íslandi hefur Póst- og fjarskiptastofnun sömu áætlanir og fram koma í gerðinni og eru tilgreindar hér að neðan.
Aðildarríki skulu stuðla að samkomulagi á milli aðildarríkjanna til að tryggja rekstur kerfanna sem nefnd eru í lið (a) og þar sem það á við einnig kerfanna sem nefnd eru í lið (b) hér að ofan, með tilliti til viðkomandi ferla og réttinda sem og viðeigandi alþjóða samkomulags. Þetta hefur þegar verið tryggt á Íslandi.
Ísland er komið lengra en flestar Evrópuþjóðir í því að losa 694 – 790 MHz tíðnisviðið þannig að úthluta megi því til notkunar fyrir háhraða farnetsþjónustu.
Engin fjárhagsleg skuldbinding hins opinbera felst í innleiðingu þessarar tilskipunar verði hún að veruleika.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Sjá efnisútdrátt |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Fjarskiptastofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32016D0687 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 118, 4.5.2016, p. 4 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D044443/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 56, 23.8.2018, p. 50 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 215, 23.8.2018, p. 41 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32002D0676 | based on | Decision No 676/2002/EC of the European Parliament and of the Council of 7 March 2002 on a regulatory framework for radio spectrum policy in the European Community (Radio Spectrum Decision) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |