32016L0844

Commission Directive (EU) 2016/844 of 27 May 2016 amending Directive 2009/45/EC of the European Parliament and of the Council on safety rules and standards for passenger ships

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Tilskipun
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.05 Sjóflutningar
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 212/2016
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Gerðin felur í sér breytingar á tilskipun 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip í samræmi við þróun í alþjóðlegum reglum sem tilskipunin byggir á. Hún byggir á reglum sem IMO hefur samþykkt og gilda fyrir öll aðildarlönd þeirra samtaka í Asíu, Afríku og víðar. Umræddar reglur byggja á tveimur alþjóðasamningum: SOLAS og Load Line.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin felur í sér breytingar á tilskipun 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip í samræmi við þróun í alþjóðlegum reglum sem tilskipunin byggir á. Hún byggir á reglum sem IMO hefur samþykkt og gilda fyrir öll aðildarlönd þeirra samtaka í Asíu, Afríku og víðar. Umræddar reglur byggja á tveimur alþjóðasamningum: SOLAS og Load Line.
Markmið tilskipunar 2009/45/EB er að koma á samræmdu öryggisstigi með tilliti til mannslífa og eigna á nýjum og gömlum farþegaskipum og háhraðaförum þegar skip úr þessum flokkum eru í innanlandssiglingum og að ákveða málsmeðferð fyrir viðræður á alþjóðavettvangi með það að markmiði að samræma reglur um farþegaskip í millilandasiglingum.
Fyrsti viðauki við tilskipun 2009/45/EB tekur tilteknum breytingum. Í viðaukanum er fjallað um öryggiskröfur fyrir ný og gömul farþegaskip í innanlandssiglingum.
Skip smíðuð eftir 1. jan 2018 þurfa að uppfylla hinar nýju reglur en einnig eru gerðar tilteknar kröfur til eldri skipa sem þau þurfa að uppfylla fyrir 1. júlí 2019. Þar er um að ræða ákveðnar kröfur til eldvarnarbúnaðar, þ.e. slökkvibúningar, björgunarbúnaðar, þ.e. ungbarnavesti og sleppibúnaðar fyrir lífbáta fyrir 1. júlí 2019.
Hér á landi eru ekki starfandi skipasmiðir sem smíða slík skip og áhrif hér á landi því eingöngu óbein ef einhver vegna krafna til skipa smíðaðra eftir 1. jan 2018. Hins vegar ef flytja á inn skip smíðað eftir 1. jan 2018, þarf það að uppfylla viðeigandi reglur og vera tekið út samkvæmt þeim.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016L0844
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 141, 28.5.2016, p. 51
Innleiðing í aðildarríkjum ESB 26 af 27 aðildarríkjum hafa tilkynnt innleiðingarráðstafanir
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 22, 5.4.2018, p. 7
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 89, 5.4.2018, p. 15

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Breytir (Modifies)

32009L0045 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi