Tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið. - 32016L2284

Directive (EU) 2016/2284 of the European Parliament and of the Council of 14 December 2016 on the reduction of national emissions of certain atmospheric pollutants, amending Directive 2003/35/EC and repealing Directive 2001/81/EC


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipun (ESB) 2016/2284 fjallar um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið. Að auki fjallar hún um aðgerðaáætlun um losun loftmengunarefna og skil á losunarbókhaldi loftmengunarefna. Tilskipunin fellir úr gildi fyrri tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni.

Nánari efnisumfjöllun

InngangurTilskipun (ESB) 2016/2284 var greind af Umhverfisstofnun árið 2017. Um er að ræða uppfærslu á greiningu.Tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið („nýrri þaktilskipun“) tók gildi í Evrópusambandinu (ESB) þann 31. desember 2016. Hún felldi úr gildi tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni. Sú síðarnefnda („eldri þaktilskipun“) var innleidd á Íslandi með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Ekki virðist sem að sérstök reglugerð hafi verið sett til að innleiða frekar ákvæði tilskipunarinnar. Í tilskipun 2001/81/EB eru landsbundin efri mörk tilgreind fyrir árið 2010. Skv. tilskipun (ESB) 2016/2284 taka samdráttarskuldbindingar gildi frá árinu 2020.Þá má benda á að tilskipun (ESB) 2016/2284, hefur verið breytt einu sinni frá gildistöku hennar, með tilskipun (ESB) 2024/299 sem greind var af Umhverfisstofnun í mars 2024.Greinar gerðarinnar1. gr. og 2. gr. tilskipunar þeirrar sem hér er til greiningar snúa að því að tilskipunin setji landsbundin efri mörk losunar fyrir brennisteinstvíoxíð (SO2), köfnunarefnisoxíð (NOx), rokgjörn, lífræn efnasambönd (NMVOC), ammóníak (NH3) og fínt svifryk (PM2,5) auk þess að gera aðgerðaáætlanir til að draga úr loftmengun ásamt því að haldið sé losunarbókhald yfir sögulega og framreiknaða losun ákveðinna loftmengunarefna sem eru tilgreind í viðauka I við tilskipunina. Greinin vísar að auki til markmiða um loftgæði, líffræðilega fjölbreytni og tengsl við loftslags- og orkustefnur.3. gr. tilskipunar þessarar eru skilgreiningar.4. gr. tilskipunar þessarar setur landsbundin mörk fyrir árslosun á SO2, NOx, NMVOC, NH3 og fínt svifryk PM2,5 fyrir annars vegar hvert ár frá 2020 til 2029 og hins vegar fyrir hvert ár frá og með árinu 2030. Vísað er til viðauka II þar sem hverju aðildarríki er úthlutað ákveðnum hlutfallssamdrætti miðað við árið 2005. Hvert ríki skal passa að losun ársins 2025 sé ekki meiri en sem nemur línulegum samdrætti milli 2020 og 2030 markmiða. Ef losunarmörkum fyrir árið 2025 er ekki náð ber aðildarríkjum að upplýsa framkvæmdastjórnina þar um í gegnum landsskýrslu um losun loftmengunarefna (Informative Inventory Report) skv. 2. mgr. 10. gr.Losun flugvéla sem snýr ekki að flugtaki og lendingu (þ.e. yfir 3000 fetum), losun alþjóðasiglinga og losun NOx og NMVOC frá meðhöndlun húsadýraáburðar og nytjajarðvegi er undanskilin landsbundnum mörkum.5. grein tilskipunarinnar fjallar um sveigjanleika í boði sem snúa m.a. að breytingum í losun vegna umbóta í losunarbókhaldi, óvenjulegu veðurfari sem leiðir til mikillar losunar fyrir stök ár ásamt óvenjulegum truflunum á raforku- og varmaframboði sem leiðir til meiri losunar. Ástæðurnar á bak við beitingu ákvæðisins þurfa að vera bornar undir framkvæmdastjórnina sem metur hvort skilyrði ákvæðisins þar um séu uppfyllt, sbr. 5. gr. og 4. hluti viðauka IV við tilskipunina.6. grein tilskipunar þessarar fjallar um aðgerðaáætlun um losun loftmengunarefna til að ná markmiðum tilskipunarinnar um samdrátt. Taka skal tillit til áhrifa losunar á loftgæði og á markmið um loftgæði. Aðgerðaáætlun skal uppfærð á a.m.k. fjögurra ára fresti. Aðgerðaáætlun skal uppfærð innan 18 mánaða frá skilum losunarbókhalds ef í ljós kemur að skyldur um samdrátt eru ekki eða verði ólíklega uppfylltar. Vísað er í viðauka III við tilskipunina þar sem fram kemur í 1. hluta lágmarksinnihald aðgerðaáætlunar í loftmengun. Í 2. hluta er kveðið á um skyldubundnar og valfrjálsar aðgerðir til að draga úr ammóníak-, svifryks- og sótlosun. Varðandi ammóníaklosun er sérstaklega vísað til bestu fáanlegu tækni skv. tilskipun 2010/75/ESB sem var innleidd á Íslandi með lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. lög nr. 66/2017. Ríkjum ber að setja á legg leiðbeiningar um góðar landbúnaðaraðferðir til að stjórna ammóníaklosun og banna notkun ammóníumkarbónatáburðar með mögulegum undantekningum fyrir minni býli.7. grein snýr að styrkjum úr sjóðum ESB til að styðja við aðgerðir til að draga úr losun loftmengunarefna.8. grein snýr að losunarbókhaldi loftmengunarefna fyrir sögulega og framreiknaða losun. Hvert ríki skal halda losunarbókhald fyrir loftmengunarefnin í töflu A í viðauka I við tilskipunina og má halda bókhald yfir loftmengunarefnin í töflu B í viðaukanum. Hvert ríki skal uppfæra og skila á fjögurra ára fresti hnituðum gögnum (landfræðileg upplausn losunar) og gögnum um stórar uppsprettur (e. large point sources) og á tveggja ára fresti framreikningum skv. töflu C í viðauka I. Hvert ríki skal skila landsskýrslu um losun loftmengunarefna árlega með þeim upplýsingum sem koma  fram í töflu D í viðauka I.9. grein snýr að vöktun á áhrifum loftmengunar. Ríkin skulu tryggja að vöktun eigi sér stað á neikvæðum áhrifum loftmengunar. Nánari útlistun er í viðauka V við tilskipunina.10. grein snýr að skilum ríkja. Fyrsta aðgerðaáætlun skal vera klár fyrir 1. apríl 2019. Skila þarf losunarbókhaldi loftmengunarefna auk hnitaðra gagna, gögnum um stórar uppsprettur og framreikningum í samræmi við skil til samnings Sameinuðu þjóðanna skv. samningi um loftmengun sem berst langar leiðir milli landa (The United Nations Convention on Long-range Transboundary Air Pollution (LRTAP Convention)). Framkvæmdastjórnin, með aðstoð Umhverfisstofnunar Evrópu og í samvinnu við aðildarríkin, mun framkvæma úttekt á losunarbókhaldinu reglulega. Ríki skulu skila á fjögurra ára fresti upplýsingum um staðsetningar á vöktunarstöðum, upplýsingum um árangursvísa sem notaðir eru til að fylgjast með áhrifunum og vöktunargögnum skv. 9. gr.11. grein snýr að skýrslugjöf Framkvæmdastjórnarinnar til Evrópuþingsins og ráðsins.12. grein snýr að stofnun vettvangs um hreint loft á vegum Framkvæmdastjórnarinnar.13. grein snýr að endurskoðun á tilskipuninni fyrir árslok 2025 með möguleika á tillögum um samdráttarskuldbindingar eftir árið 2030.14. grein snýr að aðgengi að upplýsingum í samræmi við tilskipun 2003/4/EB þar sem ríki skulu tryggja miðlun upplýsinga um aðgerðaáætlun í loftmengunarmálum, losunarbókhald loftmengunarefna og tilheyrandi skýrslur. Framkvæmdastjórninni ber að auki að miðla upplýsingum um losun loftmengunarefna í Sambandinu.15. grein snýr að samstarfi við þriðju ríki og alþjóðastofnanir.16. grein snýr að möguleika Framkvæmdastjórnarinnar á að samþykkja framseldar gerðir.17. gr. snýr að því að Framkvæmdastjórnin skuli njóta aðstoðar frá Umhverfisloftgæðanefnd, sem sett hefur verið upp í samræmi við 29. gr. tilskipunar 2008/50/EB. Nefndin skal vera nefnd í skilningi reglugerðar ESB 2011/182, sem ekki er hluti af EES samningnum.Í 18. gr. kemur fram að aðildarríki skuli setja reglur um viðurlög vegna brota á lögum sem sett hafa verið samkvæmt þeirri tilskipun sem hér er til greiningar og sjá til þess að þau séu framkvæmd.Í 19. gr. er fjallað um ákveðna breytingu sem gerð er á tilskipun 2003/35/EB um þátttöku almennings að því er varðar gerð tiltekinna skipulags- og framkvæmdaáætlana í tengslum við umhverfismál og um breytingu á tilskipunum ráðsins 85/337/EBE og 96/61/EB að því er varðar þátttöku almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð (e. access to justice).Í 20. – 22. gr. er fjallað um tímaramma fyrir innleiðingu tilskipunarinnar í aðildarríkjum, tilskipun 2001/81/EB er felld úr gildi og tilskipun (ESB) 2016/2284 tók gildi í ESB 31. desember 2016.  Helstu atriði sem snerta ÍslandHelstu breytingarnar sem gerðar eru með tilkomu tilskipunar (ESB) 2016/2284 umfram eldri tilskipun 2001/81/EB eru þær að bætt er við hámörkum (þaki) í losun á fínu svifryki (PM2,5), gerðar eru strangari og ítarlegri kröfur varðandi aðgerðaráætlun um að draga úr loftmengun (e. national air pollution control programme) og skýrsluskil eru skyldubundin fyrir SO2, NOx, NMVOC, CO, POPs, PM2,5, PM10, sót (BC) og þungmálmana kadmín (Cd), kvikasilfur (Hg) og blý (Pb), sem eru fleiri efni en áður. Þá eru bráðabirgðaumhverfismarkmið sem kveðið var á um í eldri tilskipuninni ekki fyrir hendi í þeirri nýju. Tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið (einnig nefnd þaktilskipun) fellir úr gildi tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni.Tilskipun (ESB) 2016/2284 hefur að geyma landsbundin mörk fyrir árslosun SO2, NOx, NMVOC, NH3 og PM2,5 eins og fram kemur í 4. gr. tilskipunarinnar, sbr. viðauka II við tilskipunina. Skuldbindingarnar fyrir 2030 eru byggðar á áætluðum möguleikum hvers ESB ríkis um samdrátt í losun sem fram kemur í sextándu skýrslu framkvæmdastjórnar ESB sem hefur að geyma endurskoðun á þemaáætlun um loftmengun (e. Thematic Strategy on Air Pollution („TSAP 16”)). Möguleikar hvers ríkis byggja á mögulegum samdrætti (m.t.t. hagkvæmisjónarmiða) úr líkani á vegum IIASA (International Institute of Applied System Analysis) og tóku svo einhverjum breytingum í pólitískum viðræðum.Svo hægt sé að taka tilskipunina upp í EES-samninginn þyrfti að setja landsbundnar skuldbindingar um samdrátt í losun þeirra loftmengunarefna sem tilskipunin kveður á að draga skuli úr losun frá (SO2, NOx, NMVOC, NH3 og PM2,5) fyrir EES EFTA ríkin. Slík takmörk skulu sett með það í huga að tilgangur þess að draga úr losun loftmengunarefna er að bæta loftgæði.Tilskipunin sem hér er til greiningar og þeim skuldbindingum um samdrátt í losun loftmengunarefna sem þar koma fram, er eitt af þeim tólum sem hægt er að beita til að ná markmiðum reglugerðar nr.  920/2016 sem innleiðir tilskipun 2008/50/EB um gæði andrúmslofts og hreinna loft í Evrópu. Í a. lið 1. gr. reglugerðar 920/2016 er kveðið á um markmið reglugerðarinnar en þar segir:  “Markmið reglugerðar þessarar er að viðhalda gæðum andrúmslofts þar sem þau eru mikil en bæta þau ella að því er varðar brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, […], svifryk, […] og halda loftmengun af völdum þessara efna í lágmarki og viðhalda þeim gæðum sem felast í hreinu og ómenguðu lofti“. Tilskipunin er einnig eitt af þeim tólum sem hægt er að beita til að ná markmiðum reglugerðar nr. 410/2008 sem innleiðir tilskipun 2004/107/EB um arsen, kadmíum, kvikasilfur, nikkel og fjölhringa, arómatísk vetniskolefni í andrúmslofti. Þó skal í þessu samhengi hafa í huga að tilskipun 2008/50/EB og tilskipun 2004/107/EB falla úr gildi í ESB 12. desember 2026, sbr. tilskipun (ESB) 2024/2881, sem hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað.Til þess að ákvarða metnaðarfull en jafnframt raunhæf markmið þarf Ísland að meta vandlega, fyrir hvert mengunarefni, hvaða uppsprettur eru ákjósanlegastar til að fara í aðgerðir gagnvart sem leiða til verulegs samdráttar í losun. Til þess, er nauðsynlegt að taka mið af spám, þróunar í iðnaði og tæknilegum nýjungum sem leiða til minni losunar frá tilteknum uppsprettum. Áhrif sífellt strangari skuldbindinga á sviði loftslagsmála, um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, ættu einnig að vera hafðar í huga við mat á þróun losunar á loftmengunarefnum.Árið 2019 var gerður samningur milli IIASA og Umhverfisstofnunar til að greina möguleika Íslands til að draga úr losun þeirra fimm loftmengunarefna sem nefnd eru hér að ofan (SO2, NOx, NMVOC, NH3 og PM2,5) til ársins 2030 (á sambærilegan hátt og gert var fyrir ríki ESB). IIASA gerði einnig slíka greiningu fyrir Noreg. Afurðin var skýrsla um möguleika til að draga úr loftmengun á Íslandi. Minnisblað var sent frá Umhverfisstofnun til umhverfis- og auðlindaráðuneytis í desember 2020 um niðurstöður IIASA skýrslunnar.Árið 2021 vann Umhverfisstofnun bráðabirgðaframreikninga fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið um losun loftmengunarefna til 2030 og setti í samhengi við niðurstöður IIASA, annars vegar um fyrrgreind fimm loftmengunarefni og hins vegar sérstaka greiningu á losun brennisteinstvíoxíðs sem tekur tillit til tveggja sviðsmynda niðurdælingaáforma. Greiningarnar voru senda ráðuneytinu í október og nóvember 2021.Í byrjun árs 2022 greindu Umhverfisstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneyti óformlega IIASA aðgerðirnar, m.a. m.t.t. hvaða stjórntæki væru möguleg fyrir hverja aðgerð fyrir sig.Losun einstakra efna, söguleg og framreiknuðHér fyrir neðan er samantekt um losun þeirra efna sem landsbundin mörk eru tilgreind fyrir í tilskipun (ESB) 2016/2284, þ.e. SO2, NOx, NMVOC, NH3 og PM2,5, út frá stöðu losunar eins og hún er í losunarbókhaldi Umhverfis- og orkustofnunar árið 2025 þar sem söguleg losun hefur verið reiknuð til og með 2023. Nánari upplýsingar um sögulega og framreiknaða losun loftmengunarefna má fá á vefnum https://ust.is/loft/losun-loftmengunarefna/.Losun brennisteinstvíoxíðs (SO2) á Íslandi frá 2005:Jarðvarmavirkjanir eru stærsta uppspretta brennisteinstvíoxíðslosunar á Íslandi (73% árið 2023). Í jarðvarmavirkjunum losnar brennisteinsvetni (H2S) við jarðhitavinnslu. Meginhluti þess oxast í SO2. Frá 1990 hefur losun brennisteinssambanda aukist vegna aukinnar orkuframleiðslu jarðvarmavirkjana. Síðustu ár hefur losunin þó minnkað hlutfallslega í kjölfar verkefna þar sem brennisteinsvetni er dælt ofan í jörðina. H2S er þá aðgreint úr gufunni, leyst upp í vatni og dælt djúpt niður í basaltberglög þar sem það breytist í steindir. Á eftir jarðvarmavirkjunum má rekja 27% losunar ársins 2023 til málmframleiðslu. Brennisteinslosun á sér stað í framleiðsluferlinu hjá álverum og í málmblendi. Losunin hefur verið nokkuð stöðug frá árinu 2008 (eftir stækkun eins álvers og opnun annars 2006-2008).Losun brennisteinsdíoxíðs (SO2) hefur aukist um 16% síðan 2005. Aukning í losun síðan 2005 er að mestu hægt að rekja til opnunar Hellisheiðarvirkjunar. Losunin náði hámarki árið 2012. Samdráttinn síðan þá má að mestu að rekja til niðurdælingar á brennisteinsvetni frá jarðvarmavirkjunum. Framreikningar sýna að til ársins 2030 verði um 3% samdráttur í losun miðað við 2023 sem er þó 13% aukning frá 2005. Miðað við núverandi stöðu verður því ekki unnt að uppfylla skilyrði tilskipunarinnar um samdrátt í losun SO2 miðað við árið 2005 nema farið verður í sérstakar aðgerðir. Má þar nefna niðurdælingu brennisteinsvetnis frá fleiri jarðvarmavirkjunum og hreinsunar útblásturs frá málmiðnaði.Losun köfnunarefnisoxíðs (NOx) á Íslandi frá 2005:Losun á NOx á Íslandi er aðallega frá olíubruna í fiskiskipum (53% árið 2023), frá málmframleiðslu (16%) og frá bruna jarðefnaeldsneytis í vegasamgöngum (12% árið 2023). Fiskiskip eru stærsta uppspretta NOx losunar á Íslandi sem myndast þar við eldsneytisbruna þegar köfnunarefni og súrefni hvarfast saman við hátt hitastig. Síðan 2005 hefur 43% samdráttur í losun átt sér stað frá fiskiskipum, að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar. Losun á NOx frá málmframleiðslu helst í hendur við framleiðslumagn og hefur aukist um 56% síðan 2005. Losun NOx frá vegasamgöngum hefur minnkað um 53% frá 2005. Samdráttinn má að mestu rekja til tilkomu betri mengunarvarnarbúnaðar.Losun köfnunarefnisoxíðs hefur dregist saman um 39% síðan 2005. Framreikningar sýna að til ársins 2030 verði um 3% aukning í losun miðað við 2023 sem er þó 37% samdráttur frá 2005.Losun rokgjarna lífrænna efnasambanda (NMVOC) á Íslandi frá 2005:Losun á rokgjörnum lífrænum efnasamböndum (NMVOC) á Íslandi er að mestu frá meðhöndlun húsdýraáburðar (31%), leysefna- og efnanotkun (26%), millilandaflugi (flugtök og lendingar) (10%), matvæla- og drykkjaframleiðslu (9%), fiskiskipum (6%) og vegasamgöngum (6%). Nokkur aukning hefur átt sér stað í losun frá matvæla- og drykkjaframleiðslu (130% frá 2005) meðan samdráttur hefur átt sér stað frá fiskiskipum (34%) vegna minni eldsneytisnotkunar og vegasamgöngum (86%) vegna endurnýjunar bílaflotans þar sem kröfur um minni losun loftmengunarefna frá bílvélum hafa aukist.Hér ber að hafa í huga að losun frá meðhöndlun húsdýraáburðar og nytjajarðvegi er undanskilin samdráttarkröfu tilskipunarinnar (sbr. 4. gr.). Þegar tekið er tillit til þess hefur NMVOC losun dregist saman um 36% síðan 2005. Framreikningar sýna að til ársins 2030 verði um 14% aukning í losun miðað við 2023 sem er þó 27% samdráttur frá 2005.Losun ammóníaks (NH3) á Íslandi frá 2005:Losun á ammóníaki (NH3) á Íslandi er að langmestu frá nytjajarðvegi (54%) og meðhöndlun húsdýraáburðar (45%). Hér ber að hafa í huga að losun frá meðhöndlun húsdýraáburðar og nytjajarðvegi er undanskilin samdráttarkröfu tilskipunarinnar (sbr. 4. gr.). Af þeirri losun sem fellur undir þak samdráttarkröfu tilskipunarinnar eru mest frá vegasamgöngum (58%) og iðnaði (38%). Losun frá vegasamgöngum hefur dregist saman um 70% frá 2005 meðan losun frá iðnaði hefur aukist um 93% vegna meiri umsvifa.Þegar tekið er tillit til þess að losun frá meðhöndlun húsdýraáburðar og nytjajarðvegi er undanskilin samdráttarkröfu tilskipunarinnar hefur NMVOC losun dregist saman um 54% síðan 2005. Framreikningar sýna að til ársins 2030 verði um 2% aukning í losun miðað við 2023 sem er þó 53% samdráttur frá 2005.Losun fíns svifryks (PM2,5) á Íslandi frá 2005:Losun á fínu svifryki (PM2,5) á Íslandi er að mestu frá málmiðnaði (38%), vegasamgöngum (28%) og fiskiskipum (12%). Síðan 2005 hefur 58% samdráttur í losun átt sér stað frá fiskiskipum, að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar. Á sama tíma hefur 89% aukning átt sér stað í losun frá málmframleiðslu sem helst í hendur við framleiðslumagn. Losun frá vegasamgöngum hefur minnkað um 4,5% frá 2005.Losun fíns svifryks hefur dregist saman um 22% síðan 2005. Framreikningar sýna að til ársins 2030 verði um 8% aukning í losun miðað við 2023 sem er þó 16% samdráttur frá 2005.Um aðgerðaáætlun um losun loftmengunarefnaSamkvæmt 1. mgr. 10. gr. tilskipunarinnar skal fyrsta áætlun um að draga úr losun loftmengunarefna vera gefin út fyrir 1. apríl 2019 og skv. 3. liðar 6. gr. tilskipunarinnar skal hún vera uppfærð á a.m.k. fjögurra ára fresti.Í 6. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir kemur fram að „Ráðherra gefur út til tólf ára í senn almenna áætlun um loftgæði […]. Áætlunina skal endurskoða á fjögurra ára fresti.“ Áætlunin „Hreint loft til framtíðar – Áætlun um loftgæði á Íslandi 2018-2029“ kom út árið 2017. Endurskoðuð útgáfa hefur ekki verið gefin út. Í ljósi þess að markmið um samdrátt í losun loftmengunarefna eru til að bæta loftgæði þá þarf aðgerðaáætlun um losun loftmengunarefna að kallast á við áætlun um loftgæði. Kanna mætti hvort að heppilegt væri að sameina þessar tvær áætlanir en frekari tengingar ættu í það minnsta að vera á milli þeirra.  Í 1. mgr. 4. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál kemur fram að „Ráðherra ber ábyrgð á gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum“ og fjallar 6. gr. reglugerðar nr. 786/2024 (um verkefnisstjórn vegna gerðar og eftirfylgni áætlana á sviði loftslagsmála) um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Í ljósi þess að ýmsar aðgerðir í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum stuðla einnig að samdrætti í losun loftmengunarefna þá þarf aðgerðaáætlun um losun loftmengunarefna að kallast á við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.Um losunarbókhald loftmengunarefnaRíkjum ber að halda losunarbókhald loftmengunarefna og skila landsskýrslu um losunÍ 8. grein tilskipunarinnar kemur fram að hvert ríki skuli halda losunarbókhald fyrir loftmengunarefnin í töflu A í viðauka I við tilskipunina (SO2, NOx, NMVOC, NH3, CO, Cd, Hg, Pb, POPs, PM2,5, PM10 og BC) og má halda bókhald yfir loftmengunarefnin í töflu B í viðaukanum (As, Cr, Cu, Ni, Se, Zn og TSP). Hvert ríki skal uppfæra og skila á fjögurra ára fresti hnituðum gögnum (landfræðileg upplausn losunar) og gögn um stórar uppsprettur (large point sources) og á tveggja ára fresti framreikningum skv. töflu C í viðauka I. Hvert ríki skal skila landsskýrslu um losun loftmengunarefna árlega með þeim upplýsingum sem koma  fram í töflu D í viðauka I.Í 10. grein kemur fram að losunarbókhaldið sem skilað er þurfi að vera í samræmi við skil til Sameinuðu þjóðanna skv. samningi um loftmengun sem berst langar leiðir milli landa (The United Nations Convention on Long-range Transboundary Air Pollution (LRTAP Convention)). Einnig kemur fram að framkvæmdastjórnin framkvæmi reglulega úttekt.Nú er losunarbókhald unnið af Umhverfis- og orkustofnun og skilað árlega til LRTAP-samnings ásamt landsskýrslu um losun loftmengunarefna. Einnig vinnur stofnunin hnituð gögn, gögn um stórar uppsprettur og framreikninga. Þar af leiðandi er þessari framangreindri skyldu tilskipunarinnar um losunarbókhald og skil nú þegar mætt að miklu leyti. Hinsvegar hefur þó áherslan hingað til verið á þrávirk lífræn efni (e. POPs), þar sem Ísland hefur einungis fullgilt þá bókun við LRTAP-samninginn er varðar þau efni. Í reglulegum úttektum má búast við að í framhaldi þurfi að gera úrbætur á losunarbókhaldinu.Um vöktun á áhrifum loftmengunarÍ 9. grein tilskipunarinnar er fjallað um vöktun á neikvæðum áhrifum loftmengunar sem er útlistuð nánar í viðauka V við tilskipunina. Umhverfis- og orkustofnun telur æskilegt að áhrif loftmengunar á vistkerfi verði metin með einhverjum hætti og að skoðað verði hvaða leiðir séu ákjósanlegastar í þeim efnum.Um aðgengi að upplýsingumÍ 14. grein tilskipunarinnar er fjallað um aðgengi að upplýsingum í samræmi við tilskipun 2003/4/EB. Tilskipunin sem fjallar um um almennan aðgang að upplýsingum um umhverfismál var innleidd á Íslandi með upplýsingalögum nr. 140/2012. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni var innleidd á Íslandi í lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. lög nr. 144/2013 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Innleiðingin var gerð í 13. tl. 5. gr. og 6. gr. d. í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. 6. gr. d. varð síðar 36. gr. sömu laga, sbr. lög nr. 66/2017 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Tilskipun (ESB) 2016/2284 um samdrátt í losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið (einnig nefnd þaktilskipun) fellir úr gildi ofangreinda tilskipun 2001/81/EB um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni. Ákveðin samlegðaráhrif eru á milli tilskipananna en athuga þarf vel hvernig nýta megi þá lagastoð sem sett var til innleiðingar á tilskipun 2001/81/EB. Þó er ljóst að einhverra breytinga er þörf til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2016/2284, sem hér er til greiningar, m.a. í tengslum við þá áætlun sem gera skal í samræmi við 6. gr. tilskipunarinnar. Líkur eru á að einnig þurfi lagabreytingu til að innleiða ákvæði 18. gr. tilskipunarinnar um viðurlög (e. penalties).
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Umhverfis- og orkustofnun
Kostnaður við innleiðingu tilskipunarinnar felst einkum í vinnu við gerð og uppfærslu aðgerðaáætlunar um losun loftmengunarefna og eftirfylgni. Vinnan lendir mögulega á Umhverfis- og orkustofnun.
Búast má við aukinni vinna hjá stofnuninni vegna mögulegra úrbóta á losunarbókhaldinu í kjölfar reglulegra úttekta á vegum Framkvæmdastjórnarinnar.
Áætla má að aukin vinna vegna þessara þátta samsvari um einu stöðugildi (eða 17 m.kr/ári).

Atvinnulíf
Gera má ráð fyrir að tiltekinn kostnaður geti fallið á atvinnulíf vegna aðgerða til að draga úr losun í samræmi við markmið aðgerðaáætlunar.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Tilskipun (ESB) 2016/2284 hefur að geyma landsbundin mörk fyrir árslosun SO2, NOx, NMVOC, NH3 og PM2,5 eins og fram kemur í 4. gr. tilskipunarinnar, sbr. viðauka II við tilskipunina. Ákvörðun um landsbundin mörk fyrir Ísland getur haft áhrif á þá samfélagsgeira sem mest losa og þar með ákveðna rekstraraðila, sjá nánari upplýsingar í efnisumfjöllun.

Einnig má benda á 18. gr. tilskipunarinnar um reglur um viðurlög vegna brota á lögum sem sett hafa verið samkvæmt þeirri tilskipun sem hér er til greiningar, sbr. upplýsingar í efnisumfjöllun. Viðurlög þessi gætu haft áhrif á ákveðna rekstraraðila.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016L2284
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 344, 17.12.2016, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2013) 920
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

72024L0299HUN_179432 measure national implementing implements
72019L1937HUN_201107 measure national implementing implements
72019L0633HUN_201107 measure national implementing implements
72018L0851HUN_201107 measure national implementing implements
72016L2284SVN_250853 measure national implementing implements

Breytir (Modifies)

COM(2013) 920
52013PC0920
adopts Directive (EU) 2016/2284 of the European Parliament and of the Council of 14 December 2016 on the reduction of national emissions of certain atmospheric pollutants, amending Directive 2003/35/EC and repealing Directive 2001/81/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32013L0017 implicitly repeals Council Directive 2013/17/EU of 13 May 2013 adapting certain directives in the field of environment, by reason of the accession of the Republic of Croatia Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009R0219 implicitly repeals
32006L0105 implicitly repeals Council Directive 2006/105/EC of 20 November 2006 adapting Directives 73/239/EC, 74/557/EEC and 2002/83/EC in the field of environment, by reason of the accession of Bulgaria and Romania Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32003L0035 amends Directive 2003/35/EC of the European Parliament and of the Council of 26 May 2003 providing for public participation in respect of the drawing up of certain plans and programmes relating to the environment and amending with regard to public participation and access to justice Council Directives 85/337/EEC and 96/61/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex